Fara í efni
Íþróttir

Rúnar Þór heiðraður fyrir áratuga starf

Rúnar Þór Björnsson og eiginkona hans, Arna Georgsdóttir, í Hofi í dag. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson.

Rúnar Þór Björnsson hlaut heiðursviðurkenningu fræðslu- og lýðheilsuráðs Akureyrar í dag, fyrir vel unnin störf í þágu íþrótta á Akureyri. Hann hefur í áratugi starfað fyrir Siglingaklúbbinn Nökkva og bogfimideild íþróttafélagsins Akurs. Rúnar var árum saman formaður Nökkva. Heiðursviðurkenningin var afhent á samkomu í menningarhúsinu Hofi, þegar kjöri íþróttafólks Akureyrar var lýst.