Fara í efni
Íþróttir

Ristarbein brotið og Oliver frá næstu mánuði

Oliver Heiðarsson með boltann í leik gegn Víkingum í sumar. Víkingurinn er Elías Már Ómarsson. Mynd: Ármann Hinrik

Knattspyrnumaðurinn Oliver Heiðarsson, sem gekk til liðs við KA í apríl, verður frá keppni næstu mánuði vegna meiðsla en segist, í viðtali við fótbolta.net, vonast til þess að geta spilað aftur áður en keppnistímabilinu lýkur í október.

Bein í rist vinstra fótar brotnaði undir leik KA og Víkings síðastliðinn fimmtudag, svokallað metatarsal bein. Sama bein brotnaði á síðasta ári þegar framherjinn lék með ÍBV, þá fór hann í aðgerð en þess gerist ekki þörf nú.

  • Frétt fótbolta.net:

Oliver braut sama bein – stefnir á að spila aftur á tímabilinu