Oddur Andri Hrafnsson Íslandsmeistari í boccia
Íslandsmót Íþróttasambands fatlaðra (ÍF) í boccia fór fram á Selfossi um nýliðna helgi. Um var að ræða einstaklingskeppni og fjöldi Akureyringa tók þátt í mótinu, bæði frá Akri og Eik, og Akureyringar eignuðust einn Íslandsmeistara. Oddur Andri Hrafnsson úr Akri sigraði í 1. deild og Baldvin Steinn Torfa úr Eik varð í öðru sæti. Þá varð Kolbeinn J. Skagfjörð úr Akri í öðru sæti í 2. deild, Héðinn Styrmir Jónsson úr Eik sigraði í 4. deild.
Í Hvata, vefriti ÍF, segir að mótið hafi verið í öruggri framkvæmd Suðra á Selfossi „sem í ár fagnar 40 ára afmæli og m.a. af því tilefni heimsóttu forsetahjónin frú Halla Tómasdóttir og Björn Skúlason Selfoss og brugðu einnig á leik í boccia. Heimsóknin var óvænt og skemmtileg og gladdi keppendur einstaklega mikið.“
Þorgeir Baldursson var á staðnum með myndavélina.
Úrslit urðu sem hér segir:
1. deild
1. Oddur Andri Hrafnsson, Akri
2. Baldvin Steinn Torfason, Eik
3. Hjalti Bergmann Eiðsson, ÍFR
2. deild
1. Reynir Arnar Ingólfsson, Suðra
2. Kolbeinn J. Skagfjörð, Akri
3. Telma Þöll Þorbjörnsdóttir, Suðra
3. deild
1. Elín Berg Stefánsdóttir, Firði
2. Einar Baldvinsson, Völsungi
3. Rut Guðnýjardóttir, Völsungi
4. deild
1. Héðinn Styrmir Jónsson, Eik
2. Ína Owen Valsdóttir, Suðra
3. Katla Sif Ægisdóttir, Suðra
5. deild
1. Björney Þórunn Sigurlaugsdóttir, Ösp
2. Óskar Örn Adolfsson, ÍFR
3. Gunnar Þór Jennýjarson, Nes
Rennuflokkur
1. Kristján Vignir Hjálmarsson, Ösp
2. Ástvaldur Ragnar Bjarnason, Nes
3. Þórey Rut Jóhannesdóttir, Ösp
BC 1 til 5
1. Ingi Björn Þorsteinsson, ÍFR
2. Aðalheiður Bára Steinsdóttir, Grósku
3. Hlynur Bergþór Steingrímsson, ÍFR

Halla Tómasdóttir forseti Íslands og eiginmaður hennar, Björn Skúlason, voru gestir á Íslandsmótinu og spreyttu sig í boccia. Við hlið Höllu er Bragi Bjarnason, bæjarstjóri Árborgar, og lengst til hægri Þórdís Bjarnadóttir gjaldkeri Suðra á Selfossi og fyrrum formaður félagsins. Mynd: Þorgeir Baldursson.