Fara í efni
Íþróttir

Oddeyrin – allir saman nú

Oddeyrin er næst elsta hverfi Akureyrar. Innbærinn hefur verið endurreistur með sóma og er nú eitt eitt eftirsóttasta hverfi Akureyrar með Miðbænum.

En hver er staða Oddeyrar, þessa merka hverfis ?

Hverfið á sér merka sögu og er henni gerð nokkur skil á upplýsingaskiltum við Strandgötu og Eiðsvelli. Í Sögu Akureyrar (Jón Hjaltason) er gerð góð grein fyrir sögunni. Hvað varðar skipulag er nýtt skipulag í gildi þar sem tekin er afstaða til framtíðaruppbyggingar og skipulags til framtíðar. Þó verður ekki hjá því komist að sótt er að þessu skipulagi sem góð sátt var um með hugmyndum úr öllum takti. Vonandi hefur tekist að koma í veg fyrir slíkt stórslys og uppbygging verði í þeim fasa sem skipulagið frá 2016 gerir ráð fyrir. Nú er komið að bæjaryfirvöldum að girða sig í brók og gera aðgerðaráætlun til uppbyggingar í samvinnu við Hverfisnefnd/íbúa.

Virkja þarf afl íbúanna til að takast á við ýmiskonar vanda sem því miður er allt of sýnilegur á Eyrinni. Mörg hús eru illa farin og þarfnast sárlega viðhalds, lóðir eru illa hirtar og víða er safnað bílflökum og öðru rusli. Sem betur fer er þegar sjáanleg endurnýjun húsa og fleira stendur til. Það er ánægjulegt að sjá lóðir og hús rísa úr öskustó, en betur má ef duga skal. Þörfin á samstilltu átaki fer ekki framhjá nokkrum manni. Hverfisnefndin er í lykilstöðu til að stýra svona átaki í samvinnu við bæjaryfirvöld og íbúa. Fyrst þarf að skilgreina stöðuna, meta framhaldið og gefa síðan út formlega uppbyggingaráætlun. Það er nauðsynlegt að tímasetja svona áætlun og auðvitað mun átak í þessum dúr taka langan tíma. Þó má ekki ætla sér of mörg ár í slíka endurreisn, fimm ára áætlun er ekki óraunhæf sem slík.

Móta þarf hófstillta uppbyggingu í samræmi við deiliskipulagið frá 2016. Jafnframt þarf að koma í framkvæmd tímasettri áætlun og vinna eftir henni. Það er dálítill plagsiður að búa til fínt skipulag, gleðjast og stinga því síðan ofan í skúffu. Oddeyrin má ekki við slíku sleifarlagi, komið er að hætta að tala og fara að framkvæma.

Allir saman nú, sú kynslóð sem nú býr á Oddeyrinni ber á því ábyrgð með bæjaryfirvöldum að skila hverfinu með sóma til komandi kynslóða.

Enn og aftur bið ég bæjaryfirvöld að vakna og leiða uppbyggingu Oddeyrar með sóma, það er hlutverk bæjarfulltrúa að leiða slíkt verkefni í samvinnu við alla sem málið varðar.

Nú eru stjórnmálaflokkar í dauðafæri að gera sig gildandi, það er kosið eftir örstuttan tíma til nýrrar bæjarstjórnar og vafalaust eru flokkarnir farnir að skoða þessi mál í stefnuskrám sínum. Það væri klént ef ekkert væri þar um framtíðaruppbyggingu Oddeyrar. Samfylkingin hefur skýra sýn á þessa þörf.

Nú er kominn tími athafna og framkvæmda. Tími kyrrstöðu er liðinn.

Allir saman nú!

Jón Ingi Cæsarsson er í 20. sæti á lista Samfylkingarinnar á Akureyri.