Fara í efni
Íþróttir

Nýlega byrjuð í golfi en fór holu í höggi

Linda Rakel Jónsdóttir eftir að hún fór holu í höggi á fimmtudaginn. Mynd af vef GA.

Linda Rakel Jónsdóttir kylfingur úr Golfklúbbi Akureryar fór holu í höggi á 4. braut Jaðarsvallar á fimmtudaginn í sannkallaðri rjómablíðu, að því er segir á vef GA.

„Linda Rakel er nýlega byrjuð í golfi og hefur lækkað sig hratt í forgjöf í sumar. Hún sló draumahöggið í dag með 7 járni,“ segir þar.