Fara í efni
Íþróttir

Norski framherjinn Haugland til Þórs

Knattspyrnudeild Þórs hefur samið við norska framherjann Sebastian Haugland og skrifar hann undir þriggja ára samning við Þór. Haugland er 29 ára gamall og hefur allan sinn feril leikið í heimalandinu.

Þetta kemur fram í tilkynningu á heimasíðu Þórs í dag.

„Haugland kemur til Þórs frá norska B-deildarliðinu Hodd þar sem hann var markahæsti leikmaður félagsins á síðustu leiktíð þegar Haugland skoraði átta mörk í sautján leikjum. 2024 skoraði Haugland átta mörk í fjórtán leikjum í sömu deild en þá fyrir Asane,“ segir í tilkynningu.

Þórsarar leika sem kunnugt er í efstu deild Íslandsmótsins í sumar eftir 12 ara fjarveru. Töluverðar breytingar verða á leikmannahópnum frá því fyrra eins og sjá mér:

Komnir

  • Ágúst Eðvald Hlynsson frá Vestra
  • Atli Sigurjónsson frá KR
  • Bjarni Guðjón Brynjólfsson frá FH að láni
  • Kristófer Máni Sigurðsson frá Hetti
  • Elvar Baldvinsson frá Völsungi
  • Birgir Ómar Hlynsson frá ÍBV (var lánaður þangað í fyrrasumar)
  • Isaac Antanga frá Svíþjóð
  • Sebastian Haugland frá Noregi

Farnir

  • Ibrahima Balde í Vestra
  • Orri Sigurjónsson hættur
  • Clement Bayiha til Kanada
  • Rafael Victor í Grindavík
  • Juan Guardia í Völsung
  • Dagbjartur Búi Davíðsson í KA (sneri til baka úr láni)