Fara í efni
Íþróttir

Norðmenn sigursælir á Scandinavian Cup

Norðmenn urðu í sex efstu sætum í karlaflokki og norsk stúlka sigraði í kvennaflokki, í sprettgöngu á alþjóðlega skíðagöngumótinu Scandinavian Cup í Hlíðarfjalli í dag.

Norðmenn eru með gífurlega öfluga keppendur á mótinu og allt íslenska landsliðið tekur þátt. Simen Myhre sigraði karlaflokki en Isak Stianson Pedersen, Skíðafélagi Akureyrar, varð efstur Íslendinga í 25. sæti. Amalie Haakonsen Ous sigraði í kvennaflokki en Kristrún Guðnadóttir varð efst Íslendinga, í 17. sæti.

Þetta var fyrsti keppnisdagur. Mótið átti að hefjast í gær en keppni var þá frestað vegna hvassrar suðvestanáttar.

„Aðstæður voru góðar í dag – logn og létt snjókoma. Brautir voru þéttar en snjókoman gerði það að verkum að færið var aðeins hægara en hefur verið undanfarna daga,“ segir í tilkynningu frá Skíðafélagi Akureyrar.

„Margt að öflugasta skíðagöngufólki Norðurlanda var mætt til keppni í dag og gengu konur 1,2 km og karlar 1,4 km með frjálsri aðferð (skauta aðferð). Fyrst er keppt í forkeppni þar sem allir þátttakendur reyna sig við að komast í útsláttarkeppnina sem fer fram sem riðlakeppni þar sem tveir úr hverjum riðli halda áfram þar til komið er að úrslitum.

Mikill hraði var í brautunum og reyndust þær keppendum nokkuð erfiðar, en nokkuð var um byltur og stafabrot eins og gerist gjarnan í þéttri baráttunni í útsláttarkeppninni.“

Þetta er í fyrsta skipti sem keppni af þessari stærðargráðu er haldin á Íslandi og létu keppendur vel af aðstæðum og mótahaldi. Auk áhorfenda í Hlíðarfjalli fylgdust um 2000 manns með keppninni í gegnum streymi þar sem keppninni var gerð góð skil.

„Á morgun sunnudag er keppt í 15 km göngu karla og kvenna með hóp ræsingu. Mótshaldarar hvetja áhugasama til að koma og berja augum marga af frambærilegustu skíðamönnum og konum Norðurlanda, og að sjálfsögðu til að hvetja okkar fólk í íslenska landsliðinu.“

Smellið hér til að sjá úrslit dagsins í karlaflokki

Smellið hér til að sjá úrslit dagsins í kvennaflokki

Þrjár efstu í kvennaflokki. Frá vinstri: Jasmin Kahara, Finnlandi (2. sæti), Amalie Haakonsen Ous, Noregi (1.) og Magni Smedaas, Noregi (3.)

Þrír efstu í karlaflokki. Frá vinstri: Gjoeran Tefre (2. sæti), Simen Myhre (1) og Paal Troean Aune (3).