Fara í efni
Íþróttir

Nökkvi Þeyr valinn í landsliðshópinn

Nökkvi Þeyr Þórisson var í dag valinn í A-landliðshópinn í knattspyrnu í fyrsta skipti. Framundan eru tveir vináttuleikir í janúar.

Nökkvi hefur staðið sig afar vel með liði Beerschot í belgísku B-deildinni í vetur og er liðið nú í efsta sæti deildarinnar. Nökkvi sló heldur betur í gegn með KA í sumar og varð markakóngur Bestu deildarinnar þótt enn væru sjö leikir eftir á Íslandsmótinu þegar hann fór utan! Þá var hann í haust valinn besti leikmaður Íslandsmótsins af leikmönnum deildarinnar.

A landslið karla leikur tvo vináttulandsleiki á Algarve í Portúgal í janúar. Fyrri leikurinn verður gegn Eistlandi 8. janúar á Estadio Nora og sá seinni á Estadio Algarve 12. janúar gegn Svíþjóð. Arnar Þór Viðarsson, þjálfari íslenska liðsins,  valdi í dag leikmannahóp fyrir verkefnið, sem er utan svokallaðs FIFA-glugga, og því kemur bróðurpartur leikmanna í hópnum frá félagsliðum í Bestu deildinni, Svíþjóð og Noregi, eins og segir á vef KSÍ.

„Janúarverkefni hafa fest sig vel í sessi sem hluti af dagatali A landsliðs karla og hafa nýst vel í gegnum tíðina. Þetta er auðvitað ekki FIFA-gluggi þannig að félögum ber ekki skylda til að sleppa leikmönnum í verkefnið,“ sagði Arnar. „Það er lítið við því að gera og við berum bara virðingu fyrir því. Hópurinn sem við erum með núna er góð blanda leikmanna úr ýmsum áttum og við erum mjög spenntir fyrir þessu verkefni. Við tilkynnum 22 leikmenn núna, það er líklegt að sá 23. bætist við, en það skýrist síðar."

Markverðir

  • Frederik Schram – 6 leikir
  • Hákon Rafn Valdimarsson – 3 leikir
  • Patrik Sigurður Gunnarsson – 2 leikir

Aðrir leikmenn

  • Andri Lucas Guðjohnsen – 12 leikir, 2 mörk
  • Arnór Ingvi Traustason – 44 leikir, 5 mörk
  • Arnór Sigurðsson – 25 leikir, 2 mörk
  • Aron Bjarnason – 0 leikir, 0 mörk
  • Aron Sigurðarson – 6 leikir, 2 mörk
  • Dagur Dan Þórhallsson – 2 leikir, 0 mörk
  • Damir Muminovic – 4 leikir, 0 mörk
  • Danijel Dejan Djuric – 1 leikur, 0 mörk
  • Davið Kristján Ólafsson – 11 leikir, 0 mörk
  • Guðlaugur Victor Pálsson – 31 leikur, 1 mark
  • Höskuldur Gunnlaugsson – 7 leikir, 0 mörk
  • Ísak Snær Þorvaldsson – 2 leikir, 0 mörk
  • Júlíus Magnússon – 3 leikir, 0 mörk
  • Kristall Máni Ingason – 2 leikir, 0 mörk
  • Nökkvi Þeyr Þórisson - 0 leikir, 0 mörk
  • Róbert Orri Þorkelsson – 2 leikir, 0 mörk
  • Sveinn Aron Guðjohnsen – 17 leikir, 1 mark
  • Valgeir Lunddal Friðriksson – 4 leikir, 0 mörk
  • Viktor Örlygur Andrason – 3 leikir, 0 mörk