Fara í efni
Íþróttir

Nói Björnsson formaður íþróttafélagsins Þórs

Nói Björnsson og Þóra Pétursdóttir, fráfarandi formaður Þórs, eftir aðalfundinn í gær.

Nói Björnsson var í gær kjörinn formaður íþróttafélagsins Þórs á aðalfundi þess. Nói, sem var meðstjórnandi síðasta árið, tekur við af Þóru Pétursdóttir sem gegnt hefur formannsembættinu frá síðasta aðalfundi og verður áfram í stjórn.

Margir muna eftir Nóa af knattspyrnuvellinum á árum áður en eftir að hann lagði skóna á hilluna hefur Nói sinnt ótal verkefnum fyrir Þór;  haft var á orði í gær að formannsstaðan væri líklega ein fárra sem hann hefði ekki gegnt í félaginu! Nói hefur setið í aðalstjórn félagsins í fjöldamörg ár alls, hann þjálfaði karlalið félagsins í knattspyrnu á sínum tíma og mörg síðustu ár var Nói formaður kvennaráðs Þórs/KA í knattspyrnu.