Fara í efni
Íþróttir

Mistakakorter kostaði fimm marka tap Þórs

Þórður Tandri Ágústsson skoraði fjögur mörk fyrir Þór. Eitt þeirra er hér í uppsiglingu, þar sem hann náði að kasta boltanum aftur fyrir sig af línunni eftir að Garðari Inga Sindrasyni (34) og Birgi Má Birgissyni (26) mistókst að stöðva hann. Mynd: Ármann Hinrik.

Þórsarar náðu ekki að fylgja eftir góðum útisigri í Olísdeild karla í handknattleik þegar þeir tóku á móti FH í 17. umferð deildarinnar í dag. Niðurstaðan varð fimm marka tap, 21-26, eftir hnífjafnan leik í 45 mínútur. Nikola Radovanovic varði 15 skot í marki Þórs og Þórður Tandri Ágústsson var efstur á blaði með fjögur mörk. Fyrir FH var Garðar Ingi Sindrason drýgstur með tíu mörk. 

Óhætt er að segja að hvorugt liðið hafi átt sérlega góðan dag, en leikurinn var engu að síður hnífjafn og spennandi lengst af. FH-ingar voru örlítið fljótari í gang og skoruðu fyrstu tvö mörk leiksins, en allan fyrri hálfleikinn skiptust liðin á forystunni og munurinn aldrei meiri en eitt til tvö mörk. FH-ingar með eins marks forystu eftir fyrri hálfleikinn, 12-13.

Tosað í treyjur. Ágúst Birgisson tosar í treyju Hafþórs Más Vignissonar, Þórður Tandri tosar í treyju Birkis Benediktssonar, sem aftur tosar á móti í treyju Þórðar Tandra. Mynd: Ármann Hinrik.

Þórsarar náðu tveggja marka forystu snemma í seinni hálfleiknum, 17-15 og 18-16, og áfram stefndi í hnífjafnan og spennandi leik. Þá komu þrjú mörk í röð frá gestunum, en Þórsarar jöfnuðu í 19-19 þegar rétt um stundarfjórðungur var eftir.

Síðasti stundarfjórðungurinn varð Þórsurum þó ekki heilladrjúgur, mistökunum fjölgaði og FH-ingar gengu á lagið. Enn var staðan 19-19 þegar um 12 mínútur voru eftir, en þá kom kafli þar sem FH skoraði fjögur mörk í röð og náðu að halda þeirri forystu út leikinn. Þórsarar reyndu ákaft að saxa á forskotið, en höfðu ekki erindi sem erfiði. Mikið var um mistök síðasta korterið, Þórsarar töpuðu boltanum ítrekað og þó FH-ingar hafi ekki átt neinn stórleik náðu þeir að halda dampi út leikinn og fóru heim með fimm marka sigur og bæði stigin. 

Helstu tölur úr leiknum:

Þór

Mörk: Þórður Tandri Ágústsson 4, Brynjar Hólm Grétarsson 3, Hákon Ingi Halldórsson 2, Kári Kristján Kristjánsson 2, Oddur Gretarsson 2, Þormar Sigurðsson 2, Arnór Þorri Þorsteinsson 1, Aron Hólm Kristjánsson 1, Halldór Kristinn Harðarson 1.
Varin skot: Nikola Radovanovic 15 (36,6%).
Refsingar: 6 mínútur.

FH

Mörk: Garðar Ingi Sindrason 10, Jakob Martin Ásgeirsson 4, Birgir Már Birgisson 3, Birkir Benediktsson 3, Ómar Darri Sigurgeirsson 3, Brynjr Narfi Arndal 1, Einar Örn Sindrason 1, Jón Bjarni Ólafsson 1.
Varin skot: Jón Þórarinn Þorsteinsson 7, Daníel Freyr Andrésson 5 (36,4%).
Refsingar: 8 mínútur.

Þórsarar eru áfram í 11. og næstneðsta sæti deildarinnar með níu stig, en þó aðeins 1-2 stigum á eftir næstu liðum. HK er stigi fyrir ofan, en á inni leik gegn ÍR annað kvöld. Næsti leikur Þórs er einmitt útileikur gegn HK í Kórnum á föstudag og mikilvæg stig í boði í botnbaráttu deildarinnar. FH er í 4. sætinu með 22 stig. 

- - -

Myndasyrpa Ármanns Hinriks hér að neðan sýnir eitt marka Þórðar Tandra Ágústssonar í leiknum. Hafþór Már Vignisson sendi inn á línuna, Birgir Már Birgisson (26) gerir tilraun til að stöðva hann og nær Þórður Tandri ekki að snúa sér til að ná skotinu, en lætur einfaldlega vaða blindandi aftur fyrir sig í staðinn og í markið fór boltinn.