Fara í efni
Íþróttir

Listhlaupadeild SA með vorsýningu

Æft fyrir Vorsýninguna. Frá vinstri: Júlía Rós Viðarsdóttir, Salka Rannveig Rúnarsdóttir, Darja Zajcenko, þjálfari þeirra, og Sædís Heba Guðmundsdóttir. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson

Vorsýning listhlaupadeild Skautafélags Akureyrar verður á morgun, sunnudaginn 24. apríl, í Skautahöllinni og hefst klukkan 17.00. Þema sýningarinnar í ár er Íslenska söngvakeppnin - fyrr og nú.

Miðaverð á þessa árlegu sýningu:

Fullorðnir (20+) - 1.500 kr.
12-20 ára : 1.000 kr.
6-11 ára : 500 kr.
5 ára og yngri : Frítt