Fara í efni
Íþróttir

Linda vann Gígju eftir mikla baráttu

Gígja Björnsdóttir, Akureyri, og Linda Rós Hannesdóttir, Ísafirði, háðu gríðarlega harða keppni keppni í 5 km göngunni í dag. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson.

Linda Rós Hannesdóttir frá Ísafirði sigraði í 5 km göngu með hefðbundinni aðferð í dag, á síðasta keppnisdegi Skíðamóts Íslands í Hlíðarfjalli. Hún hafði unnið einn gullverðlaun á mótinu eins og Gígja Björnsdóttir frá Akureyri og þær háðu skemmtilega baráttu í dag. Svo fór að Linda renndi sér yfir marklínuna átta sekúndum á undan Gígju.

Snorri Einarsson sigraði örugglega hjá körlunum og hefur því unnið allar greinar á Skíðamóti Íslands eins og á síðasta móti árið 2019.

Konur
1. Linda Rós Hannesdóttir, SFÍ
2. Gígja Björnsdóttir, SKA
3. Fanney Rún Stefánsdóttir, SKA

Karlar
1. Snorri Einarsson, Ulli
2. Dagur Benediktsson, SFÍ
3. Ragnar Gamalíel Sigurgeirsson, SKA

19-20 ára stúlkur
1. Fanney Rún Stefánsdóttir, SKA

17-18 ára stúlkur
1. Linda Rós Hannesdóttir, SFÍ

17-18 ára drengir
1. Sveinbjörn Orri Heimisson, SFÍ
2. Ævar Freyr Valbjörnsson, SKA
3. Einar Árni Gíslason

Hér eru heildarúrslit í kvennaflokki

Hér eru heildarúrslit í kvennaflokki

Þrjár efstu í 5 km göngunni. Frá vinstri: Gígja Björnsdóttir (2), Linda Rós Hannesdóttir (1) og Fanney Rós Stefánsdóttir (3). 

Þrír efstu í 10 km göngunni. Frá vinstri: Dagur Benediktsson (2), Snorri Einarsson (1) og Ragnar Gamalíel Sigurgeirsson (3).