Fara í efni
Íþróttir

Kvennalið Þórs tekur á móti Stjörnunni

Úrslitarimma Þórs og Stjörnunnar, um sigur í 1. deild kvenna í körfubolta, heldur áfram í dag. Liðin mætast þá öðru sinni og verður flautað til leiks í Íþróttahöllinni á Akureyri kl. 16.00.

Stelpurnar okkar töpuðu fyrsta leiknum sem fram fór í Garðabæ en vinna þarf þrjá leiki til að hreppa efsta sætið í deildinni. Vert er að geta þess að bæði lið hafa þegar tryggt sér sæti í efstu deild næsta vetur.

Miðaverð á leikinn í dag er 2.000 krónur en frítt fyrir 16 ára og yngri. Fyrir þá sem ekki komast á leikinn þá verður hann í beinu streymi á Þór TV https://www.livey.events/thortv