Íþróttir
Körfubolti: Þórsarar mæta Hetti í kvöld
13.11.2025 kl. 11:00
Smári Jónsson í leik gegn Breiðabliki fyrr í haust. Mynd: Helgi Heiðar Jóhannesson.
Þórsarar taka á móti liði Hattar í kvöld í 6. umferð 1. deildar karla í körfuknattleik. Leikurinn fer fram í Íþróttahöllinni á Akureyri og hefst kl. 19:15.
Þórsurum hefur aðeins tekist að landa einum sigri í fyrstu fimm leikjum sínum í deildinni og sitja í 10. sætinu. Ásamt Þór hafa Hamar og KV einnig unnið einnleik, en fyrir neðan þessi lið er Fylkir á botninum án sigurs.
Þórsarar fá Héraðsbúa í heimsókn í Höllina í kvöld. Lið Hattar féll úr Bónusdeildinni síðastliðið vor og hefur byrjað tímabilið í 1. deildinni ágætlega, unnið fjóra leiki og tapað einum.
- 1. deild karla í körfuknattleik
Íþróttahöllin á Akureyri kl. 19:15
Þór - Höttur
Höttur vann nauman heimasigur á Selfyssingum í síðustu umferð, 85-82, en Þórsarar voru kjöldregnir af Haukum í Hafnarfirði, 110-68.
- - -
Kappleikir næstu daga:
- Föstudagur kl. 19: Þór - Afturelding, Olísdeild karla í handknattleik
- Föstudagur kl. 19: Afturelding - KA, Unbroken-deild kvenna í blaki
- Laugardagur kl. 15: KA/Þór - Selfoss, Olísdeild kvenna í handknattleik
- Laugardagur kl. 16: Þór - Stjarnan b, 1. deild kvenna í körfuknattleik
- Laugardagur kl. 16:45: SA - SR, Toppdeild karla í íshokkí
- Laugardagur kl. 19:30: SA - SR, Toppdeild kvenna í íshokkí