Fara í efni
Íþróttir

Kolbeinn bætti 30 ára Íslandsmet í 60 m hlaupi

Akureyringurinn Kolbeinn Höður Gunnarsson, sem keppir fyrir FH, bætti Íslandsmetið í 60 metra hlaupi innanhúss í fyrrakvöld. Kolbeinn Höður geystist vegalengdina á 6,68 sekúndum og bætti þar með 30 ára gamalt met Einars Þórs Einarssonar.

Kolbeinn setti metið á Nike mótaröðinni í Kaplakrika. Í undanúrslitum mótsins hljóp hann á 6,81 sek. – einum hundraðasta úr sekúndu frá meti Einars og bætti hressilega um betur í úrslitahlaupinu.

„Tilfinningin mín var ekki sú að ég væri að hlaupa hratt. Ég hef átt erfitt með að ná afslöppunina inn í endahraðann og þarna náði ég því svo sannarlega. Þetta er langt frá því að vera tipp topp og margt hægt að bæta þannig ég trúi því að það sé meira inni,“ er haft eftir Kolbeini Heði á vef Frjálsíþróttasambandsins.

Þess má geta að lágmarkið í 60m hlaupi á EM innanhúss sem fer fram í Istanbul í byrjun mars er 6.63 sek.

„Er maður ekki allltaf að stefna á stóru mótin?“ er haft eftir Kolbeini á vef FRÍ. Hann stefnir á annað stórmótið á ferlinum, áður keppti hann í 400 m hlaupi á EM innanhúss í Prag árið 2015. Framundan hjá honum er sterkt mót í Árósum í Danmerku í lok janúar og Meistaramót Íslands sem er 18.-19. febrúar.

Smellið hér til að sjá hlaupið á Twitter síðu FRÍ.