Íþróttir
Knattspyrna: KA tapaði gegn Njarðvík
21.02.2026 kl. 18:00
Svíinn Diego Montiel, sem gekk til liðs við KA frá Vestra í vetur, þurfti að fara af velli strax á 9. mínútu gegn Njarðvíkingum í dag. Hér er hann ásamt Daníel Hafsteinssyni, fyrrverandi KA-manni, í sigrinum á Víkingi í síðustu umferð. Mynd: Ármann Hinrik
KA-menn sóttu ekki gull í greipar Njarðvíkinga þegar liðin mættust í Nettóhöllinni í Njarðvík í Lengjubikarkeppni karla í knattspyrnu í dag. Heimamenn fóru með 1:0 sigur af hólmi og sitja í efsta sæti riðilsins með 8 stig þegar fjórum umferðum af fimm er lokið. Lið KA er næstneðst með 3 stig.
Snemma leiks urðu KA-menn fyrir áfalli er Diego Montiel þurfti að yfirgefa völlinn. Eina mark leiksins kom á 83. mínútu en þá voru KA-menn orðnir einum leikmanni færri. Rodri fékk að líta rauða spjaldið fimm mínútum áður en markið kom.
Eins og áður segir eru Njarðvíkingar efstir í riðlinum og taplausir og virðast til alls líklegir í næstefstu deildinni í sumar.