Fara í efni
Íþróttir

Kjarnafæðismótið í fótbolta hefst bráðlega

KA-maðurinn Hallgrímur Jónasson og Þórsarinn Jakob Franz Pálsson í lokaleik Kjarnafæðismótsins í fyrra. KA vann 5:1 og sigraði örugglega í mótinu. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson.

Árlegt Kjarnafæðismót Knattspyrnudómarafélags Norðurlands hefst á föstudaginn í næstu viku, 15. janúar, svo framarlega sem til þess fáist heimild frá sóttvarnayfirvöldum. Staðfesting þess efnis ætti að liggja fyrir á næstu dögum.

Að þessu sinni verður keppt í þremur karlariðlum og einum kvennariðli. Riðlaskiptingin er sem hér segir:

Karlar – 1. deild A
KA, KF, Leiknir F. og Þór2.

Karlar – 1. deild B
KA2, Magni, Völsungur og Þór

(Efstu lið hvors riðils um sig leika til úrslita og liðin í 2. sæti leika um þriðja sæti mótsins)

Karlar – 2. deild
KA3, Samherjar og Þór3

(Í 2. deild verður leikin tvöföld umferð)

Kvennadeild
Fjarðabyggð/Höttur/Leiknir, Hamrarnir, Tindastóll, Völsungur, Þór/KA ogÞór/KA2

Leikið verður annars vegar í Boganum og hins vegar á gervigrasi KA.

KA-menn sigruðu örugglega í karlaflokki í fyrra og Þór/KA í kvennaflokki.