Fara í efni
Íþróttir

Keppni hefst í bítið – mótssetning síðdegis

Keppni á Landsmóti UMFÍ 50+ hefst í dag með keppni í boccia í Íþróttahöllinni á Akureyri kl. 9, en formleg mótssetning verður síðdegis.

Keppnisgreinar dagsins eru boccia, skotfimi, bærði riffil- og haglabyssugreinar, ringó og götuhjólreiðar. Þó Hrafnagilshverfið sé aðalmótssvæðið fer keppni í þremur af fjórum íþróttagreinum dagsins fram annars staðar. Keppt verður í boccia og ringó í Íþróttahöllinni á Akureyri og skotfimi á svæði Skotfélags Akureyrar á Glerárdal. Í kvöld verður keppt í götuhjólreiðum í Hrafnagilshverfinu. 

Viðburða- og keppnisdagskráin í dag lítur svona út. 

Rafræn mótaskrá - smellið á myndina til að opna blaðið.

Mótssvæðið í Hrafnagilshverfinu: