Fara í efni
Íþróttir

KA sótti sex stig suður yfir heiðar

KA-konur fögnuðu tvöföldum sigri í suðurferð helgarinnar, 3-1 gegn Þrótti og 3-1 gegn Aftureldingu. Myndin er af Facebook-síðu KA.

Kvennalið KA í blaki sótti sex stig suður yfir heiðar um helgina, vann Þrótt 3-1 á föstudagskvöld og Aftureldingu í gær, einnig 3-1. KA er í 2. sæti deildarinnar með 40 stig að loknum 16 leikjum, fjórum stigum á eftir HK. Þessi tvö lið bera höfuð og herðar yfir önnur lið í deildinni og má búast við spennandi lokaspretti þegar þau mætast tvívegis helgina 7.-8. mars.

Þróttarar unnu fyrstu hrinuna í viðureign sinni gegn KA á föstudag, 25-22. KA náði fimm stiga forystu þegar hrinan var rúmlega hálfnuð, en Þróttarar tóku við sér og unnu hrinuna. KA hóf næstu hrinu af krafti, skoraði fyrstu átta stigin, innbyrti öruggan 25-15 sigur og jafnaði leikinn í 1-1. Þriðja hrinan var hnífjöfn framan af, en eftir að staðan var 10-10 náði KA að síga fram úr og hélt forystunni út hrinuna, vann hana að lokum með sex stiga mun, 25-19. Fjórða hrinan var hnífjöfn og skiptust liðin á forystunni. Þróttur hafði 21-19 forystu, en eftir leikhlé komu sex stig í röð frá KA og sigur í hrinunni, 25-21, og sigur í leiknum þar með í höfn, 3-1.

Leikskýrslan

Blakliðin taka iðulega tveggja leikja helgar í suðurferðum og sú var einnig raunin í þessari ferð. KA sótti Aftureldingu heim í gær og mætti þar meðal annarra fyrrum leikmanni liðsins, Amelíu Ýri Sigurðardóttur, sem gekk til liðs við Mosfellinga í haust.

KA hóf leikinn gegn Aftureldingu af krafti og skoraði níu fyrstu stig leiksins áður en heimakonur komust á blað. Sigurinn í fyrstu hrinunni varð þannig aldrei í hættu og munaði tíu stigum þegar upp var staðið, 25-15. Önnur hrinan var nokkuð jafnari og Mosfellingar reyndar með forystuna um miðbik hennar, frá því að janft var 6-6 þar til KA jafnaði að nýju í 18-18 eftir að munurinn varð mest átta stig, 16-8, heimakonum í hag. KA náði svo hrinunni eftir jafnan endaspratt og upphækkun, lokatölur 26-24. Afturelding náði loks að svara fyrir sig í þriðju hrinunni þar sem endaspretturinn var þeirra eftir jafna lotu fram að stöðunni 15-15. Þá náðu þær að slíta sig frá KA og unnu hrinuna að lokum 25-17.

Það er mikilvægt fyrir KA að tapa sem fæstum hrinum í sigurleikjum liðsins í toppbaráttunni og eftir tapið í þriðju hrinunni náðu KA-konur að tryggja sigurinn með 25-20 sigri í þeirri fjórðu. KA hafði forystu nær alla hrinuna, en heimakonur jöfnuðu þó í 16-16. KA seig þá aftur fram úr og tryggði sér sigur í hrinunni og leiknum þar með, 3-1.

Leikskýrslan

Staðan í deildinni

KA er í 2. sæti, fjórum stigum á eftir HK, eins og áður sagði. Julia Bonet er stigahæsti leikmaður deildarinnar með 250 stig, en sú sem kemur næst er með 210 stig.

Lokasprettur deildarkeppninnar verður væntanlega spennandi því bæði lið eiga eftir að spila fjóra leiki og mætast tvívegis í Kórnum, heimavelli HK, helgina 7.-8. mars í lokaleikjum sínum. KA á áður eftir að mæta Þrótti Fjarðabyggð á útivelli  og Völsungi á heimavelli, en HK mætir Aftureldingu og Þrótti Fjarðabyggð á heimavelli.