Fara í efni
Íþróttir

KA semur við belgískan knattspyrnumann

Knattspyrnudeild KA samdi í dag við Belgann Sebastiaan Brebels, 26 ára miðjumann sem kemur til liðs KA frá Lommel í Belgíu. Þetta kemur fram á heimasíðu KA.

„Sebastiaan hefur staðið sig vel og leikið alla leikina fyrir Lommel á núverandi keppnistímabili þar sem hann hefur skorað 3 mörk í 14 leikjum en samtals hefur Sebastiaan leikið 105 leiki fyrir Lommel og skorað í þeim 9 mörk,“ segir á heimasíðu KA.

„KA hefur náð samkomulagi við Lommel og er Sebastiaan væntanlegur til landsins á næstu dögum. Það verður gaman að sjá þennan öfluga leikmann í KA-búningnum á komandi tímabili og bjóðum við hann velkominn norður.“