KA sækir Fram heim í Bestu deildinni í dag

KA sækir Fram heim í dag í níundu umferð Bestu deildarinnar, efstu deildar Íslandsmótsins í knattspyrnu. Leikurinn hefst klukkan 16:15.
Baráttan í neðri hluta Bestu deildarinnar er hörð og hvert stig mikilvægt. KA náði sér í þrjú mikilvæg stig í síðustu umferð með 1-0 heimasigri á Aftureldingu. Stigin þrjú dugðu þó ekki nema til að færa liðið upp um eitt sæti, af botninum í 11. sætið. ÍA er í botnsæti deildarinnar með sex stig, en KA og ÍBV þar fyrir ofan með átta stig.
Stutt er síðan KA og Fram mættust á heimavelli KA í 16 liða úrslitum bikarkeppninnar þar sem Framarar höfðu betur. Fram er í 5. sæti deildarinnar með 12 stig.
- Besta deild karla í knattspyrnu
Lambhagavöllurinn í Úlfarsárdal kl. 16:15
Fram - KA
KA og Fram hafa mæst 38 sinnum í efstu deild Íslandsmótsins. Tæp 87 ár eru liðin frá fyrstu viðureign þessara liða í efstu deild, en þau mættust á Melavellinum 25. júní 1932. KA vann þann leik 2-0. Framarar hafa hins vegar haft aðeins betur í innbyrðis viðureignum þessara liða í efstu deild, unnið 17 leiki á móti 13 sigrum KA. Átta sinnum hafa liðin gert jafntefli.
Þessi lið mættust þrisvar í Bestu deild karla í fyrra og hafði KA betur í öll skiptin, 3-2 á heimavelli og 2-1 á útivelli í deildarkeppninni og svo 4-1 á útivelli í keppni í neðri hluta deildarinnar í lok móts.
Allir sex leikir níundu umferðar fara fram í dag:
- Vestri - Víkingur (14.00)
- Afturelding - Valur (16:15)
- Fram - KA (16:15)
- ÍBV - FH (16:15)
- Breiðablik - ÍA (16:15)
- Stjarnan - KR (19:15)
Leikirnir eru allir sýndir á sportrásum Stöðvar 2.