Fara í efni
Íþróttir

KA-menn niðurlægðu Stjörnuna í Garðabæ

Ágúst Elí Björgvinsson markvörður KA reyndist ÍR-ingum erfiður í gær; Andri Snær Stefánsson, þjálfari KA til hægri, gat verið hæstánægður með sína menn í gær. Myndir: Hafliði Breiðfjörð

KA-menn léku við hvern sinn fingur í gærkvöldi þegar þeir sóttu lið Stjörnunnar heim í Garðabæ í Olísdeildinni í handbolta. Yfirburðir þeirra voru fáheyrðir og þegar lokaflautið gall munaði hvorki meira né minna en 17 mörkum – úrslitin 38:21. Staðan í hálfleik var 20:11 og löngu ljóst að KA-strákarnir héldu heim á leið með tvö dýrmæt stig í farteskinu. 

Stjörnumönnum voru afar mislagðar hendur, höfðu litla sem enga trú á verkefninu og engu var líkara en þeir hefðu kastað inn hvíta handklæðinu – gefist upp – strax í fyrri hálfleik. Fyrsta mark Stjörnunnar kom eftir þrjár mínútur, staðan þá 2:1, en fimm mínútum síðar var staðan 6:1 fyrir KA, heimamenn minnkuðu reyndar muninn í tvö mörk um miðjan hálfleikinn, staðan þá 10:8, en síðasta korterið í fyrri hálfleik gerðu KA-menn 10 mörk en Stjörnustrákarnir þrjú.

Í seinni hálfleik gerði KA svo 18 mörk en Stjarnan 10. Eins og tölurnar bera með sér er hægt að lýsa leiknum í fáum orðum: KA hafði gríðarlega yfirburði á öllum sviðum, vörn, sókn og markvörslu, auk þess sem ólíku var saman að jafna hvað einbeitingu og hvort tveggja andlegt og líkamlegt atgervi varðar.

Bjarni Ófeigur Valdimarsson, lang markahæsti KA-maður vetrarins, var fjarri góðu gamni vegna meiðsla að þessu sinni en það skipti ekki nokkru máli. Það er óskandi að hann verði til í slaginn þegar úrslitakeppnin hefst því þá þarf KA sannarlega á honum að halda. Logi Gautason fór meiddur af velli í seinni hálfleik, vonandi er það ekki alvarlegt en liðið er aldeilis ekki á flæðiskeri statt; eldri bróðirinn Dagur skokkaði inná í stað Loga og er vitaskuld aðalmaðurinn í vinstra horninu, nýgenginn til liðs við uppeldisfélagið eftir atvinnumennsku erlendis.

KA er í fjórða sæti deildarinnar þegar tvær umferðir eru eftir. Átta lið taka að því loknu þátt í úrslitakeppni um Íslandsmeistaratitilinn og fjögur efsta fá heimaleikjarétt; fá fyrsta leik, og oddaleik ef með þarf, á heimavelli gegn liðum sem enduðu neðar. Sjö lið eru örugg með sæti í úrslitakeppninni en allt getur enn gerst í baráttunni um hvar liðin enda.

Valur hefur 30 stig, FH 29, Haukar 28, KA 26, ÍBV og Afturelding 25 og Fram 24. HK er í 8. sæti með 14 stig, síðan kom Þór og Selfoss með 11, Stjarnan er með 10 stig og ÍR neðst með 7. Bæði Þór og Selfoss eiga því enn tölfræðilega möguleika á að ná 8. sætinu af HK en þau eiga líka á hættu að lenda í næst neðsta sæti og fara í umspil um áframhaldi veru í deildinni við næst efst liðið í Grill 66 deildinni.

KA getur mest náð 30 stigum og 2. sæti ef allt gengur upp. FH er í 2. sæti sem stendur með 29 stig, liðin mætast í KA-heimilinu á mánudaginn en FH mætir ÍR í lokaumferðinni og líklegt verður að telja að FH vinni botnliðið.

Þetta eru leikirnir sem efstu sjö liðin eiga eftir: 

  • Valur-HK
  • ÍBV-Valur

  • KA-FH
  • FH-ÍR

  • Haukar-Selfoss
  • HK-Haukar

  • KA-FH
  • Þór-KA

  • Fram-ÍBV
  • ÍBV-Valur

  • Afturelding-Þór
  • Selfoss-Afturelding

  • Fram-ÍBV
  • Stjarnan-Fram


Tölfræðin úr leik Stjörnunnar og KA frá HB Statz

Staðan í deildinni

Síðustu tveir leikir KA í deildinni:

  • KA - FH
    Mánudag 9. mars kl. 19:30
  • Þór - KA
    Fimmtudag 12. mars kl. 19:30