KA heima, Þór úti – hlé hjá konunum

Það verður rólegt hjá meistaraflokkunum í knattspyrnu fram eftir vikunni. Besta deild kvenna er komin í EM frí til 24. júlí, en karlalið Þórs og KA spila næst á föstudag. Sömuleiðis er æfingaleikur A-landsliðs kvenna á föstudag, síðasta verkefni fyrir EM. Í þeim hópi er Sandra María Jessen fulltrúi Akureyringa.
FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ - fótbolti
A-landslið kvenna kom saman í gær og hélt utan áleiðis til Serbíu í dag þar sem liðið mun leika æfingaleik gegn landsliði Serbíu á föstudag. Fyrsti leikur liðsins í úrslitakeppni EM verður svo miðvikudaginn 2. júlí.
- Æfingaleikur A-landsliðs kvenna
Sport Center FA of Serbia
Serbía - Ísland
- - -
Þórsarar skriðu upp um nokkur sæti með sigri á Selfyssingum í 9. umferð Lengjudeildarinnar um liðna helgi enda er keppni um miðbik og í efri hluta deildarinnar mjög jöfn. Þremur stigum munar á Þórsurum í 4. sætinu og Grindvíkingum í 8. sæti. Síðan eru fimm stig frá 4. sætinu upp í toppsætið, sem er ÍR-inga um þessar mundir.
Þór sækir Fjölni heim í 10. umferð deildarinnar á föstudag. Fjölnir hefur átt í basli það sem af er sumeri og er í næstneðsta sæti deildarinnar með sex stig, jafnmörg stig og Selfyssingar sem eru í botnsætinu.
- Lengjudeild karla í knattspyrnu
Fjölnisvöllur kl. 18:30
Fjölnir - Þór
- - -
KA seig niður í fallsæti Bestu deildar karla í 12. umferð deildarinnar þegar liðið beið ósigur fyrir Víkingum á heimavelli á sunnudag. KA situr í 11. sætinu með 12 stig úr 12 leikjum, en þó eru aðeins þrjú stig upp í eftri hluta deildarinnar, 6. sætið þar sem Fram er sem stendur með 15 stig. Fyrir neðan KA eru Skagamenn með níu stig.
KA tekur á móti Val í 13. umferðinni á föstudag. Valur vann stórsigur á KR á mánudagskvöld, 6-1, og eru Valsarar nú í 3. sæti deildarinnar með 21 stig. KA og Valur mættust í 3. umferð deildarinnar undir lok apríl og höfðu Valsmenn betur, 3-1.
- Besta deild karla í knattspyrnu
Greifavöllur kl. 18:30
KA - Valur