Íþróttir
KA gegn ÍR í kvöld í undanúrslitum bikarsins
26.02.2026 kl. 06:00
KA-menn fagna sigri á Eyjamönnum í deildinni fyrir fáeinum dögum. Mynd: Skapti Hallgrímsson
KA mætir ÍR í kvöld undanúrslitum bikarkeppni karla í handbolta í íþróttahúsi Hauka í Hafnarfirði. Sigurliðið mætir annað hvort FH eða Haukum í úrslitaleik á laugardaginn.
KA-menn eru taldir mun sigurstranglegri í kvöld. ÍR-ingar eru á botni Olísdeildarinnar með sjö stig úr 19 leikjum, en KA-strákarnir eru í fimmta sæti með 24 stig. Það er vissulega gömul saga og ný að staða liða í deildarkeppni skiptir ekki alltaf máli þegar bikarkeppni er annars vegar en ef allt er með felldu á KA að taka þátt í úrslitaleiknum.
- Powerade-bikar karla í handbolta, undanúrslit
Ásvellir í Hafnarfirði kl. 20:15
ÍR - KA - Útsending: Beint á Rúv 2
Mikið hefur verið skorað í viðureignum liðanna í deildinni vetur; KA vann báða, þann fyrri 41:36 á heimavelli í október og þegar liðin mættust á heimavelli ÍR í byrjun febrúar urðu lokatölur 37:31.
- Nánar um bikarleikinn síðar í dag.