Fara í efni
Íþróttir

KA fær Svein Margeir lánaðan í sumar

Gleði- og kveðjustund! Sveinn Margeir Hauksson, lengst til hægri, fagnar eftir að hann gerði sigurmarkið í síðasta leiknum með KA - 1:0 sigri á Víkingi í Bestu deildinni 20. júlí 2024. Jakob Snær Árnason og Ásgeir Sigurgeirsson á eftir honum. Mynd: Skapti Hallgrímsson

KA hefur fengið knattspyrnumanninn Svein Margeir Hauksson lánaðan frá Víkingum út þetta keppnistímabil. Sveinn Margeir, sem er 24 ára Dalvíkingur, er öllum hnútum kunnugur hjá KA enda lék hann með félaginu frá 2019 þar til um mitt sumar 2024 þegar hann hélt til náms í Bandaríkjunum. 

Sveinn Margeir er sóknarsinnaður miðjumaður. Hann samdi við Víking fyrir síðasta keppnistímabil en kom ekkert við sögu. Hann meiddist illa á hné en „hefur þó verið að koma sterkur til baka að undanförnu og tók meðal annars þátt í sínum fyrsta æfingaleik með Víkingum á dögunum,“ segir á vef KA í dag.

Síðasti leikur Sveins Margeirs með KA var 20. júlí 2024 þegar Víkingur kom í heimsókn í Bestu deildinni og hann kvaddi með því að gera eina markið í 1:0 sigri.

  • Nánar á vef KA:

Sveinn Margeir snýr aftur í KA – lán út sumarið

Miklar breytingar hafa orðið á leikmannahópi KA síðan í fyrra. Hér er listi sem fótbolti. hefur tekið saman og birti í vikunni:

Komnir

  • Danijel Dejan Djuric frá Króatíu
  • Diego Montiel frá Vestra
  • Jeppe Pedersen frá Vestra
  • Samuel Kroon frá Svíþjóð
  • Sveinn Margeir Hauksson frá Víkingi á láni
  • Jakob Héðinn Róbertsson frá Völsungi
  • Breki Hólm Baldursson frá ÍR (var á láni)
  • Ívar Arnbro Þórhallsson frá Völsungi (var á láni)
  • Kári Gautason frá HK (var á láni)
  • Ívar Logi Jóhannesson frá Hetti
  • Þórhallur Ási Aðalsteinsson frá Hetti
  • Dagbjartur Búi Davíðsson frá Þór (var á láni)
  • Bjarki Fannar Helgason frá Hetti/Hugin (var á láni)
  • Árni Veigar Árnason frá Hetti/Hugin (var á láni)

    Farnir
  • Ívar Örn Árnason í Breiðablik
  • Birnir Snær Ingason í Stjörnuna
  • Bjarni Aðalsteinsson til Danmerkur
  • Marcel Römer til Danmerkur
  • Ingimar Torbjörnsson Stöle til Vals
  • Jonathan Rasheed til Gautaborgar
  • Viðar Örn Kjartansson á Selfoss
  • Andri Fannar Stefánsson í Magna
  • Dagur Ingi Valsson í Keflavík
  • William Tonning til Svíþjóðar