KA burstaði ÍA í síðasta heimaleiknum
KA fékk ÍA í heimsókn í síðasta heimaleik sínum í efstu deild karla í knattspyrnu þetta árið. Þrátt fyrir að mun meira væri í húfi hjá gestunum voru það KA-menn sem höfðu leikinn í hendi sér og unnu öruggan 5:1 sigur, í leik þar sem tvö af fallegustu mörkum sumarsins í deildinni litu dagsins ljós.
Skagamenn voru í vonlítilli stöðu á botni deildarinnar fyrir nokkrum vikum en eftir fimm sigurleiki í röð voru þeir komnir upp úr fallsæti. Þeir þurftu hins vegar nauðsynlega á ennþá fleiri stigum að halda til að gulltryggja sæti sitt í deildinni. Að leik loknum kom hins vegar í ljós að ÍA er komið úr fallhættu en það atvikaðist vegna úrslita annarra leikja, því ekki var liðið nálægt því að ná einhverju úr leiknum við KA í dag.

Baldvin Þór Berndsen þrumar að marki KA langt fyrir utan teig snemma leiks í dag og boltinn hafnaði uppi í samskeytunum. Stórkostlegt mark. Myndir: Ármann Hinrik.
Skagamenn komust yfir með glæsimarki
Það voru hins vegar gestirnir sem byrjuðu betur í dag og strax á 7. mínútu kom Baldvin Þór Berndsen þeim yfir með stórkostlegu marki. Þrumuskot langt utan af velli beint upp í samskeytin. Eitt glæsilegasta mark ársins - en samt bara það næstfallegasta í leiknum!

Birgir Baldvinsson (2) jafnar fyrir KA, 10 mínútum eftir að Skagamenn komust yfir. Hann komst auðveldlega inn í vítateig, framhjá sofandi varnarmönnum og setti boltann örugglega framhjá markverðinum. Mynd: Ármann Hinrik
Birgir Baldvinsson jafnaði tíu mínútum síðar þegar hann óð upp vinstra megin og komst auðveldlega framhjá sofandi varnarmönnum gestanna inn í teig, þar sem hann setti boltann örugglega framhjá markverðinum. Og varnarmenn ÍA voru ekki vaknaðir fjórum mínútum síðar þegar Andri Fannar Stefánsson lyfti boltanum inn á teig þar sem Hallgrímur Mar Steingrímsson laumaði sér fram fyrir varnarmann og lagði knöttinn snyrtilega í netið. Andri Fannar var í byrjunarliði KA í þessum leik og bar fyrirliðabandið - mögulega síðasti leikur hans fyrir félagið.


Ingimar Torbjörnsson Stöle skorar þriðja mark KA eftir sendingu Hallgríms Mars.
Akurnesingar reyndu hvað þeir gátu eftir þetta til að svara fyrir sig en KA-liðið var heilsteypt í dag, lék vel og gaf fá færi á sér. Rasheed í markinu þurfti að verja tvisvar fyrir hlé en annars var KA með öll tök á leiknum. Heimamenn gerðu síðan út um leikinn á 66. mínútu þegar Ingimar Torbjörnsson Stöle skoraði gott mark eftir flottan undirbúning Hallgríms og Bjarna Aðalsteinssonar.
Á síðustu 10 mínútunum bætti KA við tveimur mörkum. Ásgeir Sigurgeirsson skoraði eftir að Snorri Kristinsson lagði boltann snyrtilega fyrir fætur hans inni í teig Skagamanna. Snorri er aðeins 16 ára gamall og einn af ungu strákunum í KA sem eru farnir að banka á dyrnar hjá meistaraflokki.


Ásgeir Sigurgeirsson gerir fjórða mark KA úr miðjum vítateignum eftir að hinn 16 ára Snorri Kristjánsson lagði boltann fallega fyrir Ásgeir; leikmaðurinn ungi og efnilegi fékk langa sendingu fram völlinn og sendi á markaskorarann með fyrstu snertingu.
Hallgrímur Mar með glæsilegasta mark sumarsins
Það var við hæfi að besti maður vallarins ræki síðasta naglann í kistu Skagamanna í dag með fallegasta marki Íslandsmótsins í ár. Ingimar náði að pota boltanum af Skagamanni fyrir fætur Hallgríms, þar sem þeir voru staddir í miðjuboganum á eigin vallarhelmingi. Hallgrímur var snöggur að hugsa og þrumaði knettinum einfaldlega yfir allan völlinn, yfir Árna í markinu og í marknetið. Árni var vissulega fullframarlega í markinu en þó ekki svo að marktilraun væri borðliggjandi í stöðunni. En Hallgrímur hefur sýnt það áður að hann sér lengra en flestir og hefur hæfileikana til að gera það sem hann ætlar sér.

Samherjarnir fagna Hallgrími Mar Steingrímssyni, lengst til hægri, eftir að hann gerði fimmta markið með frábæru skoti úr miðjuhringnum.
Glæsilegur 5:1 sigur í höfn og KA komst upp fyrir Eyjamenn í 7. sætið. Þessi lið mætast í Eyjum í lokaumferðinni og berjast um það hvort liðið hafnar í 7. og efsta sæti neðri hluta deildarinnar. Eyjamenn þurfa sigur, að öðrum kosti er 7. sætið KA-manna.
KVEÐJUSTUND?
Andri Fannar Stefánsson var fyrirliði KA í leiknum, hugsanlega þeim síðasta fyrir KA – að minnsta kosti síðasta heimaleiknum fyrir uppeldisfélagið. Hann átti stoðsendinguna þegar Hallgrímur Mar kom KA í 2:1. Andri lék í tæpa klukkustund og var vitaskuld klappað lof í lófa þegar honum var skipt af velli. Andri Fannar lék fyrst í meistaraflokki KA sumarið 2008, var síðan á mála hjá Val í Reykjavík í átta ár, frá 2011 til 2018 en gekk til liðs við KA á ný 2019. Hann á að baki alls 418 skráða KSÍ leiki skv. vef Knattspyrnusambandsins, þar af 201 í efstu deild.




