Fara í efni
Íþróttir

Jón Stefán hættir með lið Tindastóls

Jón Stefán Jónsson, til hægri, og Guðni Þór Einarsson, sem þjálfuðu Tindastól í sumar, þegar stelpurnar tryggðu sér sæti í efstu deild Íslandsmótsins í fyrsta skipti.

Jón Stefán Jónsson verður ekki áfram annar þjálfara kvennaliðs Tindastóls í fótbolta. Liðið tryggði sér í haust sæti í efstu deild Íslandsmótsins í fyrsta skipti, og stýrði hann liðinu ásamt Guðna Þór Einarssyni. Jónsi starfar sem íþróttafulltrúi Þórs á Akureyri og telur mikilvægt að þjálfari Tindastóls búi á Sauðárkróki.

„Eftir þrjú ár af ótrúlegum ævintýrum finnst mér kominn tími til að láta staðar numið. Mér finnst mikilvægt að stelpurnar okkar fái þjálfara sem getur verið búsettur á Króknum og þar sem algjörlega útséð er um það vegna vinnu minnar þá ákvað ég að setja hagsmuni stelpnanna framar mínum eigin,“ segir Jónsi í fréttatilkynningu frá Tindastóli sem birtist á vef Feykis á Sauðárkróki.

„Það er ekkert smá erfitt að skilja við stelpurnar á þessum tímapunkti, bæði vegna þess að ég er sannfærður um að ævintýri þeirra og Tindastóls í efstu deild sé bara rétt að byrja og vegna þess að það hefur verið draumur minn að þjálfa í efstu deild sem aðalþjálfari. Ég vil þakka stelpunum sjálfum og öllum sem standa að liðinu, þá sérstaklega okkar frábæru stjórn, kvennaráði og stuðningsmönnum fyrir æðislegan tíma. Guðna þakka ég ómetanlegt samstarf en við höfum bundist órjúfanlegum vinaböndum til lífstíðar.“

Stjórn Tindastóls þakkar Jónsa fyrir ómetanlegt starf og fórnfýsi, segir leit að eftirmanni hans standa yfir og „og verður vonandi frétta að vænta af þeim málum fljótlega.“

Nánar á vef Feykis