Fara í efni
Íþróttir

Jóhann Kristinn snýr aftur til Þórs/KA!

Samningurinn undirritaður! Dóra Sif Sigtryggsdóttir, formaður stjórnar Þórs/KA og Jóhann Kristinn Gunnarsson sitjandi. Fyrir aftan er hluti stjórnar og þrír leikmenn. Frá vinstri: Guðrún Una Jónsdóttir, Bjarni Freyr Guðmundsson, Ísfold Marý Sigtyggsdótti, Sandra María Jessen, Jakobína Hjörvarsdóttir og Íris Egilsdóttir. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson

Jóhann Kristinn Gunnarsson hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks Þórs/KA í knattspyrnu til næstu þriggja ára. Húsvíkingurinn Jóhann er Akureyringum að góðu kunnur, hann þjálfaði liðið frá hausti 2011 til loka leiktíðarinnar 2016 og Þór/KA varð Íslandsmeistari 2012, fyrsta sumarið hans við stjórnvölinn.

„Þá fór hann með liðið í Evrópukeppni árið 2013 ásamt því að komast í bikarúrslitaleikinn. Öll fimm árin sem Jói þjálfaði Þór/KA varð liðið í einu af fjórum efstu sætum deildarinnar. Hann fór einnig með Þór/KA í undanúrslit Lengjubikarsins 2013, 2014, 2015 og 2016. Þá þjálfaði hann lið Þórs/KA Hamranna í 2. flokki 2014-2016 og vann bikarmeistaratitil og silfurverðlaun 2015 og Íslandsmeistaratitil 2016,“ segir á vef Þórs/KA.

„Jóhann Kristinn hefur mikla reynslu af þjálfun, bæði í meistaraflokki kvenna og karla, en hann hefur þjálfað karlalið Völsungs um árabil með hléum, en hafði áður einnig þjálfað kvennalið félagins. Samkvæmt gagnagrunni KSÍ hefur hann verið skráður þjálfari á leikskýrslu í 146 kvennaleikjum með Þór/KA og Völsungi og 235 karlaleikjum með Völsungi og Boltafélagi Húsavíkur.“

Dóra Sif Sigtryggsdóttir, formaður stjórnar Þórs/KA, lýsir yfir mikilli ánægju með að fá Jóhann aftur til starfa.

„Við í stjórninni erum rosalega ánægð með þessa ráðningu. Jói er með mikla reynslu af þjálfun og gerði Þór/KA meðal annars að Íslandsmeisturum 2012, á sínu fyrsta tímabili með liðið. Hann hefur mikinn metnað fyrir Þór/KA og veit hvað þarf til að ná árangri. Við teljum að hann sé rétti þjálfarinn fyrir okkur og hann mun klárlega bæta okkur sem lið og sem einstaklinga. Við vitum hvað býr í stelpunum okkar og við erum fullviss um að Jói mun ná því besta fram í leikmönnum og liðinu öllu,“ segir Dóra Sif á vef liðsins.

Stjórnin mun í samstarfi við þjálfara vinna að því að efla tengingu og auka samstarf á milli allra flokkanna, en eins og kunnugt er rekur Þór/KA nú 2. og 3. flokk, ásamt meistaraflokki.

Ágústa Kristinsdóttir yfirþjálfari yngri flokka

Stjórn Þórs/KA hefur samið við Ágústu Kristinsdóttur um að taka að sér starf yfirþjálfara yngri flokkanna og tekur hún við því starfi af Jóni Stefáni Jónssyni. Ágústa kom inn í þjálfarateymi Þórs/KA fyrir um ári síðan og var einn þriggja þjálfara í 2. og 3. flokki. „Ekki þarf að fara mörgum orðum um frábæran árangur 3. flokks á árinu, en þar eru í safninu bikarar fyrir Stefnumót, Barcelona Cup, bikarkeppni KSÍ og Íslandsmót.

Ágústa er okkur hjá Þór/KA auðvitað einnig að góðu kunn sem leikmaður, en hún á að baki 108 leiki með Þór/KA og Hömrunum á árunum 2011-2020.“

Hannes Bjarni sjúkra- og styrktarþjálfari

Hannes Bjarni Hannesson kom inn í þjálfarateymið sem sjúkraþjálfari fyrir nýafstaðið tímabil og tók síðan við af Elmu Eysteinsdóttur sem styrktarþjálfari meistaraflokks á miðju tímabili, en hún hefur sem kunnugt er snúið sér að stjórnmálum og var kjörin í bæjarstjórn Akureyrar í vor. Hannes Bjarni verður áfram í þjálfarateyminu og mun að auki verða með styrktaræfingar fyrir yngri flokkana.

„Hannes Bjarni hefur mikinn metnað og hefur náð vel til hópsins á þeim tíma sem hann hefur starfað með félaginu. Stjórnin býður hann velkominn til starfa og þakkar Elmu fyrir hennar mikilvæga framlag til félagsins og liðanna okkar.

Stjórn Þórs/KA býður þetta frábæra fagfólk velkomið til starfa og væntir mikils af starfi þeirra með okkar mjög svo spennandi og gríðarlega efnilega leikmannahópi í öllum flokkum.“