Fara í efni
Íþróttir

Jajalo og Steinþór semja báðir út 2024

Steinþór Már Auðunsson og Kristian Jajalo. Ljósmyndir: Skapti Hallgrímsson

Báðir markverðir knattspyrnuliðs KA hafa gert nýjan tveggja ára samning við félagið og eru því samningsbundnir út 2024.

Kristijan Jajalo skrifaði í dag undir samning til tveggja ára að því er segir á vef KA og í gær var tilkynnt um samning Steinþórs Más Auðunssonar.

Jajalo, sem er 29 ára Bosníumaður, gekk til liðs við KA fyrir leiktíðina 2019. Stubbur, eins og KA-menn kalla Steinþór jafnan, hóf ferilinn í KA og sneri heim á ný fyrir síðasta keppnistímabil eftir langa fjarveru. Hann stóð óvænt í markinu síðasta sumar eftir að Jajalo meiddist illa rétt áður en Íslandsmótið hófst og lék gríðarlega vel en Bosníumaðurinn hefur verið aðalmarkvörður á ný síðan um mitt sumar.