Fara í efni
Íþróttir

Ívar Örn semur við KA til tveggja ára

Ívar Örn fagnar fyrsta marki sínu fyrir KA, í sigurleiknum gegn ÍBV á heimavelli í sumar. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson

Varnarmaðurinn Ívar Örn Árnason skrifaði í dag undir nýjan tveggja ára samning við knattspyrnudeild KA og er nú samningsbundinn félaginu út árið 2024. Hann hefur verið lykilmaður í vörn KA í sumar og aldrei leikið betur. Því er afar mikilvægt að KA skuli hafa tryggt sér krafta hans áfram en liðið er í harðri baráttu um 2. sæti deildarinnar að þessu sinni og tekur þátt í Evrópukeppni næsta sumar.

„Ívar er 26 ára gamall og hefur verið einn besti miðvörður Bestu deildarinnar í sumar en ekki nóg með að vera frábær varnarmaður er Ívar magnaður karakter sem gefst aldrei upp og mikill félagsmaður en hann er uppalinn hjá KA. Þá var faðir hans, Árni Freysteinsson, leikmaður í Íslandsmeistaraliði KA sumarið 1989,“ segir á heimasíðu KA.

Ívar hefur spilað 89 leiki fyrir KA í deild og bikar og gerði fyrsta markið fyrir félagið í sumar í 4:3 heimasigri á ÍBV. „Það eru gríðarlega jákvæðar fregnir að við höldum honum áfram innan okkar raða og verður áfram spennandi að fylgjast með okkar manni á komandi árum en það styttist í hundraðasta leik hans fyrir félagið og þá er spennandi Evrópuverkefni framundan á næstu leiktíð.“