Fara í efni
Íþróttir

Íslandsmót sveita í boccia – MYNDIR

Myndir: Þorgeir Baldursson

Um 100 keppendur frá 10 félögum tóku þátt í Íslandsmóti sveita í boccia sem Íþróttasamband fatlaðra hélt í Vestmannaeyjum um fyrri helgi, 18. og 19. apríl. Akureyrarfélögin Eik og Akur sendu keppendur á mótið og vann sveit Akurs silfurverðlaun í 1. deild og sveit Eikar gullverðlaun í 2. deild.

Þorgeir Baldursson fylgdist með mótinu og tók meðfylgjandi myndir.

1. deild

1. sæti: Suðri - B; Telma Þöll Þorbjörnsdóttir, Ina Owen Valsdóttir og Sveinn Axel Guðlaugsson

2. sæti: Akur - 2; Sigrún Björk Friðriksdóttir, Védís Elva Þorsteinsdóttir og Arnfríður Stefánsdóttir

3. Sæti: Völsungur - D; Jóna Rún Skarphéðinsdóttir, Kristín Smith og Anna María Bjarnardóttir

2. deild

1. sæti: Eik – E; Nanna Kristín Antonsdóttir, Steinunn María Þorgeirsdóttir og Telma Axelsdóttir

2. sæti: Ægir – C; Anton Sigurðsson, Birgir Rúnar Júlíuson og Ylfa Óladóttir

3. Sæti: Ægir – B; Stefán Róbertsson, Júlíana Silfá Haraldsdóttir og Katrín Helena Magnúsdóttir

BC 1 til 5

1. sæti: ÍFR – A; Ingi Björn Þorsteinsson og Hlynur Bergþór Steingrímsson

2. sæti: ÍFR – B; Hjörleifur Smári Ólafsson og Haukur Hákon Loftsson

3. Sæti: Gróska / Þjótur; Aðalheiður Bára Steinsdóttir og Sigurður S. Kristinsson

Félögin sem tóku þátt í mótinu voru Akur og Eik frá Akureyri, Fjörður úr Hafnarfirði, Gróska frá Sauðárkróki, Íþróttafélag fatlaðra í Reykjavík, Snerpa á Siglufirði, Suðri frá Selfossi, Völsungur frá Húsavík, Þjótur á Akranesi og Ægir frá Vestmannaeyjum.