Íþróttir
Íslandsmót og bikarmót í áttungsmílu í dag
02.08.2026 kl. 06:00
Myndin er frá Bíladögum fyrr í sumar. Mynd: Þorgeir Baldursson.
Það verður nóg um að vera á svæði Bílaklúbbs Akureyrar í dag, Íslandsmeistaramót í áttungsmílu og bikarmót í sömu grein í beinu framhaldi. Íslandsmeistaramótið átti að fara fram í gær, en var frestað til sunnudagsins vegna óhagstæðrar veðurspár. Keppni á Íslandsmeistaramótinu hefst kl. 11 og í Bikarmótinu kl. 17.
Dagskráin á svæði Bílaklúbbs Akureyrar lítur því svona út í dag:
- Íslandsmótið í áttungsmílu
09:00 tímatökur hefjast
10:45 tímatökum lýkur
11:00 keppni hefst
14:00 áætluð keppnislok og kærufrestur byrjar
14:30 kærufresti lýkur - Bikarmótið
14:30 móttaka keppenda hefst
14:45 skoðun hefst
15:00 pittur lokar
15.30 skoðun lýkur
15.45 keppendafundur
16.00 tímatökur hefjast
16.45 tímartökum lýkur
17:00 keppni hefst
18:30 áætluð keppnislok