ÍSÍ og UMFÍ auglýsa eftir svæðisfulltrúa
ÍSÍ og UMFÍ hafa auglýst eftir einstaklingi með brennandi áhuga á íþróttastarfi í starf svæðisfulltrúa fyrir Norðurland eystra. Tveir svæðisfulltrúar vinna að eflingu íþróttastarfs á hverju svæði og er landinu skipt í átta svæði.
Svæðisstöðvar íþróttahéraða hófu starfsemi í ágúst 2024. Þóra Pétursdóttir hefur gegnt starfi svæðisfulltrúa frá upphafi og verður áfram, en Kristján Sturluson sem einnig hefur starfað sem svæðisfulltrúi undanfarið ár hefur verið ráðinn íþróttafulltrúi KA. Svæðisfulltrúi sem nú er auglýst eftir fyrir Norðurland eystra getur verið með staðsetningu á sambandssvæði HSÞ, ÍBA, UÍF eða UMSE, þ.e. í Eyjafjarðar- eða Þingeyjarsýslum.
Um starf svæðisfulltrúa segir meðal annars í auglýsingu ÍSÍ og UMFÍ: „Tveir svæðisfulltrúar vinna að eflingu íþróttastarfs á hverju svæði ásamt því að vinna að sameiginlegum verkefnum í öflugu teymi 16 svæðisfulltrúa. Starfsemi svæðisstöðva byggir á sjálfstæðum vinnubrögðum og drifkrafti þar sem samvinna, fagmennska og frumkvæði í sterkri liðsheild er grundvallaratriði.“
Nánari upplýsingar um starfið má finna á vef UMFÍ - sjá hér.
Umsóknarfrestur um starfið er til og með 15. maí.