Fara í efni
Íþróttir

Í aðdraganda kvennakvölds: Með storminn í fangið

Lífið er ekki alltaf dans á rósum, og sannarlega ekki íþróttalífið heldur. Stundum blæs á móti, brött brekka fram undan og verkefnin á stundum eins og þau séu óyfirstíganleg. Það gerist líka hjá þeim sem leggja sig fram, leggja allt í sölurnar og berjast fyrir liðið sitt, félagið sitt. Þegar við göngum áfram með storminn í fangið er mikilvægt að taka saman höndum og berjast gegn honum saman sem ein heild.

Kvennaliðin hér á Akureyri hafa öll upplifað hæðir og lægðir á einhverjum tímapunktum, í nútíð, nálægri eða fjarlægri fortíð, eins og öll lið gera, alltaf, alls staðar. Hvort sem það er blak, fótbolti, handbolti, íshokkí eða körfubolti þá gildir það sama: Liðsheildin, samstaðan, baráttan, bjartsýnin, ánægjan af því að æfa og spila þá íþrótt sem hver og ein elskar er það sem skilar okkur fram á veg.

Liðin okkar eru og eiga að vera fyrirmyndir fyrir stelpur á öllum aldri sem eru að æfa og keppa, eða bara prófa sig áfram í þessum íþróttagreinum. Foreldrar og aðrir ættingjar styðja stelpurnar sínar, mæta á leikina, leggja sitt af mörkum í sjálfboðavinnu til að halda starfinu gangandi. Þennan stuðning þurfum við öll til að halda starfinu gangandi og halda áfram að berjast í fremstu röð. 

Allur þessi stuðningur, í hvaða formi sem hann er – vinna fyrir liðið sitt og félagið, styrkja starfið með hvers kyns framlögum, mæta á leiki og aðra viðburði, hvetja stelpurnar okkar áfram í blíðu og stríðu – er gríðarlega mikilvægur fyrir íþróttakonurnar okkar, liðin sem heild og fólkið sem starfar í sjálfboðavinnu eða sem launaðir starfsmenn. Það er svo líka gömul saga og ný að stuðningurinn er auðfengnari þegar vel gengur, en hann er einmitt mikilvægastur þegar sú er ekki raunin.

Ég hvet okkur öll til að láta verkin tala, mæta á leikina hjá stelpunum okkar, hvaða íþrótt sem þær stunda og hvort sem við eigum ættingja í liðinu eða ekki. Það eitt að eitt okkar mæti gerir ef til vill ekki mikið í sjálfu sér, eitt hvatningarhróp kann að hljóma eins og hróp í eyðimörkinni, en saman getum við allt. Ein rödd verður að tveimur, þremur og svo áfram að einum stórum kór sem skilar liðunum okkar skrefinu framar.

Við þurfum líka öll, sem einstaklingar, eigendur og stjórnendur fyrirtækja, sem samfélag, að berjast gegn mismunun, berjast fyrir því að tryggja stelpunum okkar jafnan rétt, jöfn tækifæri og sýna það í verki með ráðum og dáð, sýna það með öllum þeim stuðningi sem hvert okkar og eitt getur veitt.

Áfram stelpur!

- - -

Íþróttafélögin Þór og KA, sem saman eða hvort í sínu lagi standa að kvennaliðum í fjórum boltaíþróttum; blaki, fótbolta, handbolta og körfubolta, halda sitt árlega kvennakvöld laugardaginn 30. maí. Þessar samkomur skila ekki aðeins tekjum inn í starf þessara liða heldur eru einnig kjörið tækifæri til að auka samkennd á milli þessara íþróttagreina, þessara kvennaliða. 

Í aðdraganda kvennakvöldsins er líka kjörið að sýna stelpunum okkar í Þór/KA – kvennaliðinu okkar í fótboltanum – stuðning sem þær eiga sannarlega skilið og þurfa á að halda um þessar mundir með því að mæta á völlinn kl. 14 á laugardag. Alveg kjörin upphitun fyrir kvennakvöldið og góð viðspyrna inn í sumarið sem við getum gert eftirminnilegt saman.

Haraldur Ingólfsson er alls konar, meðal annars sjálfboðaliði og sérlegur áhugamaður um jöfn tækifæri fyrir konur í íþróttum