Hvenær spila Þór og KA á lokakaflanum?
Fyrir liggur hvenær leikir Akureyrarliðanna í síðustu fimm umferðum Bestu deildar í knattspyrnu fara fram. Það er fyrirfram ákveðið hvernig leikjum er raðað og fer eftir stöðu liðanna að loknum 22 umferðum.
KA byrjar gegn FH á útivelli en Þór sækir Val heim. Nágrannaslagurinn verður á KA-velli og í síðustu umferðinni, seint í október, munu Þórsarar kljást við FH-inga, sem þeir unnu í dag, en KA-menn taka á móti Vestmannaeyingum.
Þetta eru dagsetningarnar, með fyrirvara um breytingar:
23. umferð, 13. september:
FH - KA
Valur - Þór
24. umferð, 20. september:
KA - Þór
25. umferð, 11. október:
Stjarnan - KA
Þór - ÍBV
26. umferð, 18. október:
Þór - Stjarnan
Valur - KA
27. umferð, 24. október:
FH - Þór
KA - ÍBV
* Fréttin hefur verið uppfærð eftir að KSÍ breytti leikdögum að leikjunum loknum í dag.