Fara í efni
Íþróttir

Hlaupanámskeið fyrir 9-15 ára krakka

Undanfarin ár hefur fjöldi íslenskra hlaupara notið leiðsagnar hjá Þorbergi Inga Jónssyni, einum fremsta utanvegahlaupara landsins, og nú fær yngri kynslóðin líka tækifæri til að kynnast utanvegahlaupunum. Í þessari viku hefst fjögurra vikna utanvegahlaupanámskeið fyrir 9-15 ára krakka undir leiðsögn Þorbergs Inga. Tímarnir eru tvisvar í viku, klukkutíma í senn, og þátttaka er ókeypis.

Þau hjónin Þorbergur Ingi og Eva Birgisdóttir hafa þjálfað marga hlaupara undir merkjum Fjallahlaupaþjálfunar og námskeiðið er samstarfsverkefni Fjallahlaupaþjálfunar og 66N. í lýsingu á námskeiðinu segir að það henti krökkum sem eru tilbúnir að hreyfa sig með hléum í allt að klukkutíma. Námskeiðið fer fram í Naustaborgum og Kjarnaskógi og Þorbergur Ingi segir að þau vilji kenna ungmennum að fóta sig og hreyfa sig í náttúrunni og nýta þetta fallega „leiksvæði“ sem við höfum hérna í bakgarðinum.

Allar æfingarnar fara fram utanvega og að stórum hluta utan stíga. „Við æfum hlaupastíl og hraðastjórnun, hlaupum og göngum til skiptis og lærum að njóta þess að hreyfa okkur úti,“ segir í námskeiðslýsingu.

Fyrsti tíminn er næstkomandi miðvikudag en tímarnir eru á miðvikudögum kl. 16-17 í Naustaborgum og kl. 15-16 í Kjarnaskógi á föstudögum .

Eins og áður segir kostar ekkert á námskeiðið og hægt er að skrá börnin á það hérna í gegnum Abler.