Fara í efni
Íþróttir

Hjólatúr til styrktar HM-förum

Hafdís Sigurðardóttir og Silja Jóhannesdóttir eru á leið á HM. Mynd: Akureyrardætur
Þær Hafdís Sigurðardóttir og Silja Jóhannesdóttir úr Hjólreiðafélagi Akureyrar eru á leið á HM í götuhjólreiðum sem fram fer í Glasgow í fyrri hluta ágústmánaðar. Alls fara átta keppendur á vegum Hjólreiðasambands Íslands á mótið sem fram fer 3.-12. ágúst. Þær Hafdís og Silja keppa í Elite-flokki. 
 
Félagsskapurinn Akureyrardætur og Hjólreiðafélagið ætla að styðja við bakið á þeim Hafdísi og Silju og halda Styrktarsamhjól til að safna upp í kostnað þeirra við þátttöku í mótinu. Lagt verður af stað frá Hofi á morgun, mánudag, kl. 17:30, hjólað fram að Hrísum þar sem verða grillaðar pylsur, kaffi og kökur. Þá verða dregnir út nokkrir vinningar.
 
Hópurinn tekur við frjálsum framlögum í reiðufé eða með millifærslu á reikning Akureyrardætra: 
  • Banki: 0565-14-403380
  • Kennitala: 2812675319