Fara í efni
Íþróttir

Heimaleikir KA og Þórs – Þór/KA í Hafnarfirði

Gyrðir Hrafn Guðbrandsson, María Dögg Jóhannesdóttir og Birgir Baldvinsson verða í eldlínunni með Akureyrarliðunum í fótboltanum í dag. Myndir: Ármann Hinrik.

Spennan verður allsráðandi hjá liðum Akureyringa í Bestu deild karla og kvenna í dag og reyndar næstu vikur, eins og staðan er núna. Bæði karlaliðin eiga heimaleik, KA gegn Breiðabliki og Þór gegn FH. Þór/KA fer hins vegar í Hafnarfjörðinn og mætir FH. Í báðum deildum er um að ræða lokaumferð deildanna fyrir tvískiptingu. 

Lið KA og Þórs í Bestu deild karla eiga ekki möguleika á að færa sig upp í efri hlutann, en leikirnir í dag, sem og þeir fimm leikir sem liðin eiga eftir í neðri hlutanum á næstu vikum, snúast auðvitað um að safna stigum og forðast fall. KA er í fallsæti eins og staðan er núna, 12. sætinu með 17 stig eftir 21 leik, en Þór er í 10. sætinu með 18 stig.

Öruggt er að KA, ÍBV, Þór og FH verða í neðri hlutanum, en enn er ekki ráðið hvort næstu tvö verða Stjarnan, Valur, ÍA eða Keflavík.

Þór/KA á hins vegar enn möguleika á að færa sig upp í hóp sex efstu liða fyrir tvískiptingu Bestu deildar kvenna, þrátt fyrir að liðið hafi færst niður um sæti í gær eftir að Fram vann ÍBV í Eyjum. Hvort sem liðið endar fyrir ofan eða neðan strik getur skipt sköpum á lokasprettinum að ná stigum í dag. Það sem þarf að gerast svo Þór/KA endi í efri hlutanum er að þær vinni FH í dag og að annaðhvort eða bæði gerist að Grindavík/Njarðvík tapi fyrir Val í dag eða Þróttur tapi fyrir Breiðabliki á morgun. Það myndi nægja Þór/KA til að enda á meðal efstu sex liða á betri markamun en hin liðin. Öruggt er að Valur og Víkingur verða á meðal fjögurra neðstu, næsta víst að Fram verði þar einnig vegna óhagstæðrar markatölu og fjórða liðið yrði þá Þór/KA, Grindavík/Njarðvík eða Þróttur.

Allir leikir Akureyrarliðanna í Bestu deildunum hefjast kl. 14 í dag.

  • Fótbolti
    Besta deild karla, 22. umferð
    Greifavöllurinn á Akureyri (KA-völlur) kl. 14
    KA - Breiðablik

  • Fótbolti
    Besta deild karla, 22. umferð
    VÍS-völlurinn á Akureyri (Þórsvöllur, gervigras) kl. 14
    Þór - FH

  • Fótbolti
    Besta deild kvenna, 10. umferð
    Kaplakrikavöllur í Hafnarfirði kl. 14
    FH - Þór/KA

Stöður í deildunum: