Fara í efni
Íþróttir

Heiðursgestur KA: „Bikarinn fer norður“

Mynd af heimasíðu KA

Þorsteinn Már Baldvinsson forstjóri Samherja verður heiðursgestur KA á úrslitaleik Mjólkurbikars karla í knattspyrnu á laugardaginn. Þorsteinn Már er einarður stuðningsmaður KA spáir sínum mönnum að sjálfsögðu sigri!

„Mér þykir afskaplega vænt um að vera heiðursgestur KA á þessum stóra degi og ætla að njóta dagsins eins og allt stuðningsfólk félagsins,“ segir Þorsteinn Már í samtali við heimasíðu KA en hann hefur fylgt félaginu frá unga aldri, bæði sem keppnismaður og stuðningsmaður.

Hann segist hafa beðið lengi eftir þessari stundu. „Já að sjálfsögðu, ef ég man rétt er þetta fyrsti bilarúrslitaleikur KA í knattspyrnu í 19 ár og þess vegna hvet ég alla stuðningsmenn til að mæta í Laugardalinn og hvetja strákana okkar áfram. Bikarúrslitaleikir eru alltaf skemmtilegir og staðreyndin er sú að öflugur stuðningur skiptir gríðarlega miklu máli og getur jafnvel skipt sköpum.“

Þorsteinn Már er spurður hvernig hann búi sig undir leikinn og svarar: „Ég kem eflaust til með að hringja nokkur símtöl um morguninn og fara yfir málin með góðum vinum og svo spáir maður og spekúlerar í leikskipulagi fram og til baka. Ég mæti örugglega snemma í Laugardalinn og tek þátt í gleðinni sem þar verður ríkjandi.“

Og svo er það stóra spurningin, hvernig fer leikurinn?

Heiðursgesturinn er ekki í vafa um það: „Ég er sannfærður um að bikarinn fer norður. Í hálfleik verður staðan 1-1 og KA menn gera svo út um leikinn í síðari hálfleik. Þegar dómarinn flautar til leiksloka stendur 1-3 á markatöflunni í Laugardalnum. KA sem sagt vinnur leikinn með þremur mörkum gegn einu og um kvöldið verður svo víða dansað og fagnað. Ég segi einfaldlega, ÁFRAM KA!!“