Handbolti: Þór átti engin svör gegn ÍBV
Þórsarar sóttu ÍBV heim í kvöld í 6. umferð efstu deildar karla í handknattleik, Olís-deildinni. Lokatölur urðu 37:31 heimamönnum í vil, eftir að jafnræði hafði verið með liðunum í fyrri hálfleik.
Fyrir leikinn voru liðin jöfn í 6.-8. sæti deildarinnar með tvo sigra úr 5 leikjum og leikurinn var því mikilvægur í baráttunni um að halda sér í hópi 8 efstu liðanna. Þórsarar byrjuðu betur í leiknum og höfðu frumkvæðið framan. Um miðjan fyrri hálfleik braut Atli Steinn Arnarson Eyjamaður á Bertram Simonsen á miðjum vellinum þegar Þórsarar voru á leið í hraðaupphlaup og eftir að hafa skoðað atvikið á skjá vísuðu dómarar leiksins Atla Steini af velli með rautt og blátt spjald. Skömmu síðar voru Þórsarar komnir með fjögurra marka forystu og virtust vera með sannfærandi frumkvæði. En því miður fyrir þá nýtti Eyjamaðurinn Dagur Arnarsson sér það að Atli Steinn var farinn af velli og Þórsarar réðu illa við hann. ÍBV saxaði smám saman á forskotið og Dagur kom heimamönnum 17:16 yfir rétt fyrir lok fyrri hálfleiks og þannig var staðan í leikhléi. Dagur skoraði alls tólf mörk í leiknum.
ÍBV hleypti Þór aldrei inn í leikinn
ÍBV hélt uppteknum hætti í seinni hálfleik og Þórsarar áttu engin svör. Munurinn varð aldrei minni en tvö mörk, sóknarleikurinn gekk illa upp og vörn heimamanna stal boltanum hvað eftir annað. Mestur var munurinn sjö mörk heimamönnum í vil en síðasta mark leiksins var Þórsara og lokatölur urðu 37:31. Alls ekki nægilega sannfærandi frammistaða hjá Þór en þeir munu samt halda kyrru fyrir í Eyjum þangað til á morgun og leika þá við b-lið ÍBV í bikarkeppninni.
Næsti deildarleikur Þórs er heimaleikur gegn Stjörnunni næstkomandi miðvikudagskvöld en Stjarnan bar sigurorð af KA í kvöld og komst þar með upp fyrir Þór í stigatöflunni.
Mörk Þórs: Hafþór Már Vignisson 6, Bertram Simonsen 5, Oliver Möller Christensen 5, William Skovager 4 (1 víti), Hákon Ingi Halldórsson 3, Þórður Tandri Ágústsson 3, Oddur Gretarsson 2, Guðmundur Ari Jónsson 1, Mikkel Bak Scheumann Jensen 1, Sigurður Ringsted Sigurðsson 1.
Varin skot: Nikola Radovanovic 11.
Mörk ÍBV: Dagur Arnarsson 12 (5 víti), Anton Frans Sigurðsson 5, Magnús Dagur Jónatansson 5, Daníel Þór Ingason 4, Sveinn José Rivera 4, Jason Stefánsson 3, Gary Emanuel Philips 2, Kristófer Ísak Bárðarson 1, Petar Jokanovic 1.
Varin skot: Petar Jokanovic 15, Sigurmundur Gísli Unnarsson 0.