Fara í efni
Íþróttir

Hallgrímur sló 40 ára gamalt met gegn Fylki

Hallgrímur Mar Steingrímsson náði merkilegum áfanga um helgina. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson

KA-maðurinn Hall­grím­ur Mar Stein­gríms­son náði merkilegum áfanga í efstu deild karla fót­bolta í 1:1 jafn­teflinu gegn Fylki í gær.

„Hall­grím­ur lék sinn 155. leik í röð með KA í deild­inni og er þar með orðinn sá leikmaður sem hef­ur leikið flesta leiki sam­fleytt fyr­ir eitt fé­lag í efstu deild, án þess að missa úr leik,“ segir Víðir Sigurðsson, íþróttafréttamaðurinn margreyndi á Morgunblaðinu, á mbl.is í morgun.

„Hann komst í gær upp fyr­ir Magnús Þor­valds­son, sem á sín­um tíma lék 154 leiki í röð með Vík­ingi í deild­inni. Magnús setti metið á ár­un­um 1976 til 1983 þannig að hann hafði átt það í 40 ár, þangað til Hall­grím­ur sló það í gær.“

Smellið hér á til að sjá ýmsa fleiri fróðleiksmola Víðis á mbl.is í morgun