Fara í efni
Íþróttir

Gullstelpurnar fengu hálfa milljón frá KEA

Styrkurinn afhentur. Frá vinstri, Hildur Ösp Gylfadóttir varaformaður stjórnar KEA, Eiríkur Haukur Hauksson formaður stjórnar KEA, Martha Hermannsdóttir fyrirliði KA/Þórs og Ásdís Guðmundsdóttir leikmaður KA/Þórs.

Stjórn KEA hefur ákveðið að styrkja handknattleikslið KA/Þórs, vegna árangurs liðsins á nýafstöðnu keppnistímabili, en Stelpurnar okkar unnu alla titla sem í boði voru. KA/Þór sigraði í Meistarakeppni HSÍ – varð þar með Meistari meistaranna, varð síðan deildarmeistari í vor og loks Íslandsmeistari, eftir sigur á Val í þriggja leikja úrslitarimmu.

„Þetta er frábær árangur hjá stelpunum og okkur fannst vert að heiðra þær fyrir árangurinn. Við erum afar stolt af þeim og viljum með þessum hætti óska þeim áframhaldandi góðs gengis,“ er haft eftir Eiríki Hauki Haukssyni, stjórnarformanni KEA, á heimasíðu félagsins, um hálfrar milljóna króna styrk sem KEA færði  liðinu.

„KEA styrkurinn kemur sér vel fyrir áframhaldandi starf og uppbyggingu liðsins. Við erum þakklátar fyrir stuðninginn og höldum áfram að gera okkar besta,“ segir Martha Hermannsdóttir, fyrirliði KA/Þórs, á vef KEA. Þar er haft eftir Mörthu að sigurvíman sé varla enn runnin af liðinu!

KEA veitir árlega styrki til ýmissa mála á sviði, menningar, íþrótta og lista. Styrkurinn til kvennaliðs KA/Þórs er hins vegar aukastyrkur sem samþykktur var af stjórn KEA einfaldlega vegna þess að stjórninni fannst að stelpurnar ættu umbun skilið fyrir þennan frábæra árangur vetrarins, segir á vef KEA. „Þetta eru flottar stelpur og frábærar fyrirmyndir og ekki á hverjum degi sem Íslandsmeistaratitill kemur hingað til Akureyrar,“ segir Eiríkur.