Fara í efni
Íþróttir

Götukörfuboltamót og „Garðurinn“ vígður

Götukörfuboltamót verður haldið annan laugardag, 27. ágúst, í Garðinum hans Gústa – „glæsilegasta útikörfuboltavelli landsins – við Glerárskóla“ eins og segir í tilkynningu. Þrír verða í hverju liði.

„Mótið er haldið í tengslum við Akureyrarvöku og verður völlurinn vígður formlega við sama tilefni,“ segir í tilkynningu frá vinum og lærisveinum Ágústs H. Guðmundssonar heitins, sem höfðu frumkvæði að því að völlurinn varð að veruleika.

Keppt verður í fjórum flokkum karla og kvenna: 13 ára og yngri, 15 ára og yngri, 25 ára og eldri og opnum flokki. Hvert lið fær a.m.k. þrjá leiki. Allir geta tekið þátt. Einn skiptimaður er leyfður (sem sagt 4 leikmenn í hverju liði að hámarki). Þaulvanir dómarar dæma.

Fyrstu leikir hefjast kl. 12.00 og verður leikjaniðurröðun birt daginn fyrir mót.

Auk sigurverðlauna í hverjum flokki verða veitt verðlaun fyrir bestu tilþrif, flottasta liðið og háttvísi. Heitt verður á grillinu og plötusnúður verður á staðnum, að því er segir í tilkynningunni.

Skráning á mótið fer fram í gegnum netfangið 3a3Akureyri@gmail.com og þarf að taka fram í tölvupósti nöfn liðsmanna, fæðingardag og ár auk nafn liðs. Skráning þarf að berast eigi síðar en kl. 12.00 á hádegi föstudaginn 26. ágúst. Þátttökugjald er 8000 krónur á lið og greiðist á staðnum.

Garðurinn hans Gústa á Facebook