Fara í efni
Íþróttir

Gígja og Isak Stianson á verðlaunapalli

Þrjár fyrstu í 5 km göngu kvenna með frjálsri aðferð. Frá vinstri: Gígja Björnsdóttir (2), Íslandsmeistarinn Kristrún Guðnadóttir og Elsa Guðrún Jónsdóttir (3).

Akureyringar fengu tvenn verðlaun í fullorðinsflokki í fyrstu keppnisgrein í skíðagöngu á Skíðamóti Íslands sem hófst í gær. Gígja Björnsdóttir fékk silfurverðlaun og Isak Stianson Pedersen brons þegar gengið var með frjálsri aðferð. Konurnar gengu 5 km og karlarnir 10 km. Keppt var í Ólafsfirði.

Þau Kristrún Guðndóttir og Snorri Einarsson, bæði úr skíðagöngufélaginu Ulli, sigruðu nokkuð örugglega. Var þetta annar Íslandsmeistaratitill Kristrúnar með frjálsri aðferð en hún vann einnig árið 2019, en Snorri varð Íslandsmeistari í fjórða skipti í greininni; hann hefur unnið greinina á Skíðamóti Íslands síðan 2018, að undanskildu árinu 2020 – eðlilega, þar sem mótinu var aflýst.

Birta María Vilhjálmsdóttir, Skíðafélagi Akureyrar, og Fróði Hymer, Ulli, sigruðu í flokki 17-18 ára.

Eftir reglugerðarbreytingar á síðasta skíðaþingi í haust voru 13-16 ára iðkendur einnig á Skíðamóti Íslands, en þeir hafa hingað til keppt á Unglingameistaramóti Íslands.

Konur
1. Kristrún Guðnadóttir - Ullur
2. Gígja Björnsdóttir - SKA
3. Elsa Guðrún Jónsdóttir - SÓ

Karlar
1. Snorri Einarsson - Ullur
2. Dagur Benediktsson - SFÍ
3. Isak Stianson Pedersen - SKA

17-18 ára stúlkur
1. Birta María Vilhjálmsdóttir - SKA

17-18 ára drengir
1. Fróði Hymer - Ullur
2. Ástmar Helgi Kristinsson - SFÍ

15-16 ára stúlkur
1. María Kristín Ólafsdóttir - Ullur
2. Sigríður Dóra Guðmundsdóttir - Ullur
3. Árný Helga Birkisdóttir - SFS

15-16 ára drengir
1. Grétar Smári Samúelsson - SFÍ
2. Hjalti Böðvarsson - Ullur
3. Birkir Kári Gíslason - SKA

13-14 ára stúlkur
1. Svava Rós Kristófersdóttir - SÓ
2. Dagný Emma Kristinsdóttir - SFÍ
3. Silja Rún Þorvaldsdóttir - SÓ

13-14 ára drengir
1. Árni Helgason - SÓ
2. Eyþór Freyr Árnason - SFÍ
3. Stefán Þór Birkisson - SFS

Hér má sjá öll úrslit á mótinu.

Þrír fyrstu í 10 km skíðagöngu með frjálsri aðferð. Frá vinstri: Dagur Benediktsson (2), Íslandsmeistarinn Snorri Einarsson og Isak Stianson Pedersen (3).