Fyrsta stig KA kom í Akraneshöllinni
KA mætti ÍA í Akraneshöllinni í 3. umferð efstu deildar karla í knattspyrnu í kvöld og lauk leiknum með 1:1 jafntefli. Þótt Skagamenn hefðu átt fleiri hættuleg markfæri í leiknum voru úrslitin kannski ekki svo ósanngjörn og KA nældi þar með í sitt fyrsta stig í deildinni, eftir að hafa tapað fyrstu tveimur leikjunum á heimavelli.
Á Akranesi er grasvöllur af „gamla skólanum“ og hann er ekki enn orðinn leikfær. Leikurinn var því færður inn í Akraneshöllina. Eins og í fyrstu tveimur leikjum mótsins voru KA-menn ekki alveg með á nótunum fyrsta hálftímann eða svo og heimamenn mikið ákveðnari. Eftir að hafa m.a. átt skot í þverslá náðu Skagamenn að brjóta ísinn eftir liðlega hálftíma leik. KA tapaði boltanum á miðjunni og Markús Páll Ellertsson skoraði gott mark eftir hraða skyndisókn. Litlu síðar áttu heimamenn annað gott færi en eina almennilega færi KA í fyrri hálfleik kom undir lokin þegar Valdimar Logi Sævarsson var nálægt því að vippa boltanum yfir markvörð ÍA en sá náði að blaka honum yfir markið á síðustu stundu.

Diego Montiel, hér með boltann í Víkingsleiknum á dögunum, gerði mark KA í jafnteflinu við ÍA í Akraneshöllinni. Mynd: Ármann Hinrik
KA-menn sprækari í seinni hálfleik
KA-menn voru í allt öðrum gír í seinni hálfleik og léku mun betur en í þeim fyrri. Engu að síður voru það Skagamenn sem áttu fleiri og betri færi en Steinþór Már í markinu var í miklu stuði og bjargaði nokkrum sinnum vel. KA átti líka færi og Markús Máni Pétursson átti t.d. góðan skalla í stöng heimaliðsins. Það var svo á 70. mínútu sem KA jafnaði metin. Valdimar Logi gerði vel hægra megin og átti vel tímasetta sendingu út í teiginn vinstra megin þar sem Diego Montiel afgreiddi knöttinn hnitmiðað í fjærhornið. Það sem eftir lifði leiks voru KA-menn betri aðilinn og voru nær því en heimamenn að gera út um leikinn.

Kári Gautason, til vinstri, og Valdimar Logi Sævarsson voru sprækir á Skaganum í kvöld. Myndir: Ármann Hinrik
Þegar á heildina er litið geta KA-menn alveg verið sáttir við stigið úr leiknum. Afar dauft var yfir liðinu í fyrri hálfleik en það hresstist til muna eftir hlé og ekki síst eftir þrefalda skiptingu sem kom eftir klukkutíma leik. Liðið saknar Hallgríms Mars Steingrímssonar, sem missti af öðrum leik sínum í röð vegna meiðsla. Þá var Birgir Baldvinsson ekki heldur í hóp en hann meiddist í síðasta leik. Samuel Kroon var heldur ekki í leikmannahópnum. Þá hlýtur það að vera áhyggjuefni hversu illa Danijel Dejan Djuric gengur að aðlagast liðinu en það hefur ekki komið mikið út úr honum það sem af er móti. Sveinn Margeir Hauksson er ekki kominn á fulla ferð ennþá og Jóan Símun Edmundsson fékk sínar fyrstu tvær mínútur í mótinu í þessum leik. Steinþór var góður í markinu, varnarlínan er að þéttast og Kári og Guðjón vængbakverðir voru sprækir, ásamt Valdimar Loga. Varamennirnir komu svo inn með góðan kraft á réttum tíma.
Næsti leikur KA er strax næstkomandi sunnudag þegar liðið tekur á móti nýliðum Keflavíkur.