Fara í efni
Íþróttir

Fótbolti.net: Þrír KA-menn í liði ársins

KA-mennirnir Nökkvi Þeyr Þórisson, Rodri og Ívar Örn Árnason. Ljósmyndir: Skapti Hallgrímsson

Fótboltavefur Íslands, fotbolti.net, hefur valið lið ársins í Bestu deildinni, efstu deild Íslandsmótsins.  Þar er að finna þrjá KA-menn sem allir léku sérlega vel í sumar, varnarmanninn Ívar Örn Árnason, spænska miðjumanninn Rodri og framherjann Nökkva Þey Þórisson. Sá fjórði, Dusan Brkovic, er á meðal varamanna.

Lið ársins valið af blaðamönnum miðilsins var tilkynnt í gær. Um KA-mennina þrjá segir þetta:

  • Ívar Örn Árnason
    Þessi 26 ára miðvörður festi sig rækilega í sessi sem vinstri hafsent í sterkri varnarlínu KA. Frammistaða hans við hlið Dusan Brkovic í hjarta varnarinnar var einn helsti lykillinn að því að KA nældi sér í Evrópusæti.
  • Rodri
    Þessi 33 ára Spánverji er feikilega mikilvægur í liði KA. Hann einn sá besti af miðjumönnum deildarinnar í því að komast inn í sendingar og fleira. Hann er einhvern veginn alls staðar og er með gríðarlega góðan leikskilning og staðsetningar.
  • Nökkvi Þeyr Þórisson 
    Talandi um að vera óstöðvandi. Sumarið litaðist af óvæntum stjörnum og Nökkvi Þeyr Þórisson er svo sannarlega ein af þeim. Sannaði það að aukaæfingin skapar meistarann og var seldur til Beerschot í Belgíu eftir að hafa skorað 17 mörk í Bestu deildinni.

Smellið hér til að sjá lið ársins hjá fótbolta.net