Fara í efni
Íþróttir

Fjörugt íþróttalíf um helgina - allt sýnt beint

Mikið er um að vera hjá akureyrsku íþróttafólki um helgina, bæði í heimabænum og annars staðar. Í húsum bæjarins verður boðið upp á blak, fótbolta, handbolta og íshokkí.

Áhorfendum verður hvergi hleypt inn frekar en undanfarið vegna Covid-19, en hægt er að fylgjast með öllum viðburðum í beinni útsendingu.

Laugardagur

14.30 Fram – Þór, Lengjubikarkeppni karla í fótbolta sýndur beint á Fram TV, smellið hér til að horfa.

15.00 KA – Þróttur Reykjavík, Mizunodeild kvenna í blaki – sýndur beint á KA TV, smellið hér til að horfa.

15.00 KA – Valur, Lengjubikarkeppni karla í fótbolta – sýndur beint á Stöð 2 Sport.

16.00 Stjarnan – KA/Þór Olísdeild kvenna í handbolta – sýndur beint á 210tv, smellið hér til að horfa.

17.45 SA – Fjölnir, Hertzdeild kvenna í íshokkí – sýndur beint á sjónvarpsrás íshokkísambandsins, smellið hér til að horfa. Áhorfendur þurfa að skrá sig en það er ókeypis.

19.30 Þór 3 – Nökkvi, Kjarnafæðismótið í fótbolta, B-deild – sýndur beint á Þór TV, smellið hér til að horfa.

Sunnudagur

9.00 SA – Fjölnir, Hertzdeild kvenna í íshokkí – sýndur beint á rás Íshokkísambandsins, smellið hér til að horfa. Áhorfendur þurfa að skrá sig en það er ókeypis

13.00 KA – Þróttur Reykjavík, Mizunodeild kvenna í blaki – sýndur beint á KA TV, smellið hér til að horfa

15.00 Þór/KA – Tindastóll, Lengjubikarkeppni kvenna í fótbolta – sýndur beint á KA TV, smellið hér til að horfa 

16.30 Þór – Grótta, Olísdeild karla í handbolta í Höllinni – sýndur beint á Stöð 2 Sport

- - - 

Uppfært sunnudag: Leik ÍBV og KA í Olísdeild karla í handbolta var frestað í dag vegna veðurs. Hann verður kl 18.00 mánudagskvöld.