Fara í efni
Íþróttir

Fjögur ungmenni úr UFA í úrvalshópi FRÍ

Róbert Mackay og Sigurlaug Anna Sveinsdóttir, fyrir ofan, og í neðri röðinni eru Birnir Vagn Finnsson og Andrea Björg Hlynsdóttir.

Róbert Mackay, Birnir Vagn Finnsson, Sigurlaug Anna Sveinsdóttir og Andrea Björg Hlynsdóttir úr Ungmennafélagi Akureyrar hafa verið valin í Úrvalshóp Frjálsíþróttasambands Íslands (FRÍ) fyrir ungmenni á aldrinum 15-19 ára.

„Markmið úrvalshóps er að sporna gegn brottfalli unglinga úr frjálsíþróttum og skapa vettvang fyrir frjálsíþróttaunglinga landsins til að kynnast utan keppni. Til þess að vera valinn í úrvalshóp unglinga er farið eftir ákveðnum viðmiðum sem segir til um góðan árangur,“ segir í tilkynningu frá UFA. Þar kemur fram að viðmiðin verði erfiðari eftir því sem unglingarnir eldast svo það kosti mikla æfingu að halda sér í hópnum. „Stefnt er að því að afrekshópurinn komi saman nokkrum sinnum á árinu í æfingabúðum. Hópurinn fær auk þess aðgengi að fræðsluerindum bæði fyrir keppendur, foreldra þeirra og þjálfara. Ungmennafélag Akureyrar er stolt af þessum úrvalshópi iðkenda UFA sem valinn hefur verið, þau eru góðar fyrirmyndir og gaman verður að fylgjast með afrekum þeirra áfram.“