Fara í efni
Íþróttir

Fjallahjólahelgi og fótboltaleikir

Meðal viðburða vikunnar fram undan er fjallahjólahelgi Hjólreiðafélags Akureyrar þar sem hjólað verður í Hlíðarfjalli og Kjarnaskógi á föstudag, laugardag og sunnudag. Fótboltinn rúllar áfram og Þór/KA spilar tvo leiki í Bestu deild kvenna, útileik á þriðjudag og heimaleik á sunnudag, karlalið Þórs á heimaleik á laugardag og karlalið KA útileik á sunnudag.

ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ - fótbolti

Eftir tvo heimasigra í röð er komið að útileik hjá Þór/KA í Bestu deild kvenna í knattspyrnu með heimsókn í Garðabæinn. Stjarnan er í 3. sæti deildarinnar með 18 stig úr fyrstu tíu leikjunum, en Þór/KA í 9. sætinu með níu stig. Stutt er á milli liða í neðri hluta deildarinnar og munar aðeins sex stigum á liðinum sem eru í 5. og 10. sæti deildarinnar, Þróttur með 13 stig og Fram með sjö. Þar á milli eru Grindavík/Njarðvík, Valur, Víkingur og Þór/KA.

  • Besta deild kvenna í knattspyrnu, 12. umferð
    Stjörnuvöllur (Samsung-völlurinn í Garðabæ) kl. 18
    Stjarnan - Þór/KA

Fyrri leik Þórs/KA og Stjörnunnar í byrjun maí lauk með 2-2 jafntefli þar sem Margrét Árnadóttir jafnaði á 90. mínútu leiksins. Þór/KA vann Grindavík/Njarðvík 1-0 á heimavelli í síðasta leik, en Stjarnan gerði 1-1 jafntefli við Val á útivelli.

FÖSTUDAGUR, LAUGARDAGUR, SUNNUDAGUR, 17.-19. JÚLÍ - fjallahjólreiðar

Hjólreiðafélag Akureyrar stendur fyrir fjallahjólreiðahelgi 17.-19. júlí í samstarfi við Greifann. Hjólað er í Hlíðarfjalli og í Kjarnaskógi.

  • Föstudagur 17. júlí kl. 18
    Ungdúró HFA
  • Laugardagur 18. júlí kl. 13
    Enduro HFA
  • Sunnudagur 19. júlí kl. 13
    Fjallabrun HFA

Upplýsingar um keppnisgreinarnar og skráning eru á vef Hjólreiðasambands Íslands - sjá hér.

LAUGARDAGUR 18. JÚLÍ - fótbolti

Staða Þórs í 12. sæti Bestu deildar karla í knattspyrnu batnaði ekki í 14. umferð mótsins því á meðan Þór mátti þola 6-1 tap fyrir Fram í Úlfarsárdalnum unnu tvö næstu lið fyrir ofan í töflunni, FH og KA, bæði sína leiki. Þór er núna með átta stig, en fyrir ofan eru FH með 11 stig og KA með 13. Þór tekur á móti langefstaliði deildarinnar, Íslandsmeisturum Víkings, á laugardag. Víkingur er með 40 stig á toppi deildarinnar eftir 14 leiki, átta stigum á undan KR.

  • Besta deild karla í knattspyrnu, 15. umferð
    Þórsvöllur (VÍS-völlurinn, gervigrasvöllur á Ásnum) kl. 16
    Þór - Víkingur

Fyrri leik liðanna sem fram fór á Víkingsvelli í byrjun maí lauk með 6-0 sigri Víkings.

SUNNUDAGUR 19. JÚLÍ - fótbolti

Eftir sex tapleiki í röð náði KA loks að vinna leik í 14. umferð mótsins þegar liðið tók á móti ÍA og það með dramatískum hætti því þriðja markið í 3-2 sigri KA kom úr vítaspyrnu með næstsíðustu spyrnu leiksins. KA er þó enn í 10. sæti deildarinnar, er með 13 stig úr 14 leikjum, en bilið í næstu lið styttist því ÍA, ÍBV og Stjarnan eru í sætunum fyrir ofan með 15 stig. Það er því líka stutt upp í efri hlutann því Keflavík er í 6. sætinu með 16 stig. Næstu andstæðingar KA eru ÍBV, en liðin mætast á Hásteinsvelli í Vestmannaeyjum á sunnudag.

  • Besta deild karla í knattspyrnu, 15. umferð
    Hásteinsvöllur í Vestmannaeyjum kl. 14
    ÍBV - KA

Þessi lið mættust á Akureyri snemma í maí og þar hafði KA 2-0 sigur.

- - -

Takturinn í Bestu deild kvenna hefur verið fremur undarlegur það sem af er sumri. Eftir mjög þétta leikjadagskrá í lok apríl og allan maímánuð hafa landsleikjahlé A-landsliðsins og þátttaka U19 landsliðsins gefið liðunum aukafrí, en að loknu U19 hléinu spilar Þór/KA þrjá leiki á 11 dögum. Annar leikurinn í þeirri törn var á þriðjudag, en á sunnudag er komið að heimaleik gegn ÍBV. Þegar þetta er ritað, á mánudegi, er Þór/KA í 9. sæti deildarinnar með níu stig úr fyrstu tíu leikjunum, en ÍBV er í 4. sætinu með 17 stig.

  • Besta deild kvenna í knattspyrnu, 13. umferð
    Þórsvöllur (VÍS-völlurinn, gervigrasvöllur á Ásnum) kl. 16
    Þór/KA - ÍBV

Fyrri leikur liðanna fór fram í Eyjum snemma í maí og lauk honum með 2-0 sigri ÍBV.