Fara í efni
Íþróttir

FH lánar Andreu Mist til Breiðabliks

Andrea Mist Pálsdóttir, knattspyrnukona frá Akureyri, hefur skrifað undir samning við Breiðablik og mun leika með liðinu á þessu ári. Hún er samningsbundin FH, sem féll úr efstu deild í haust, en er lánuð í Kópavoginn.

„Andrea Mist er 22 ára gömul og leikur oftast sem miðjumaður. Hún er uppalin á Akureyri og hefur lengst af leikið með Þór/KA á sínum ferli. Andrea lék sem lánsmaður hjá austurríska liðinu FFC Vorderland veturinn 2019. Í janúar 2020 gekk hún til liðs við Oribicia Calcio í Serie A deildinni á Ítalíu. Vegna heimsfaraldursins kom hún hins vegar aftur heim til Íslands og samdi við FH þar sem hún lék síðastliðið sumar. Andrea lék vel hjá FH og skoraði fimm mörk í 13 leikjum í deild og bikar,“ segir í tilkynningu frá Breiðabliki.

Alls hefur Andrea leikið 121 leik í deild og bikar á Íslandi og skorað 22 mörk. Þá á Andrea að baki þrjá landleiki með A-landsliði Íslands auk 30 leikja með yngri landsliðum Íslands.